Juventus er með þriggja stiga forskot á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar eftir 2-1 útisigur á Sampdoria í kvöld.
Meistararnir í Juventus komust yfir á 19. mínútu með marki Paulo Dybala eftir sendingu frá Alex Sandro.
Heimamenn náðu að jafna metin á 35. mínútu þegar Gianluca Caprari skoraði. Boltinn féll fyrir hann í teignum upp úr hornspyrnu og hann var ekki lengi að koma boltanum í netið.
Rétt fyrir hálfleikinn kom Cristiano Ronaldo Juventus yfir á nýjan leik með skalla eftir sendingu Sandro.
Ekkert var skorað í seinni hálfleik og því reyndist mark Ronaldo sigurmarkið.
Juventus er nú með 42 stig á toppi deildarinnar, þremur stigum meira en Inter sem á þó leik til góða.
