Enski boltinn

Keyrði Lam­borg­hini inn í garð klæddur sem snjó­karl

Anton Ingi Leifsson skrifar
Antonio var í vandræðum á jóladag.
Antonio var í vandræðum á jóladag. vísir/getty

Michail Antonio, leikmaður West Ham, slapp ómeiddur á jóla dag er hann missti stjórn á Lamborghini-bíl sínum og keyrði hann inn í garð.

Framherjinn var þó ekki í venjulegum fötum er hann kom út úr bílnum Hann var klæddur sem snjókarl. Garðurinn sem Antonio keyrði inn í var í Balham, suður London.

West Ham æfði á jóladag og átti að mæta síðar um kvöldið á liðshótelið þar sem þeir voru að fara undirbúa sig fyrir leik gærdagsins en liðið tapaði 2-1 fyrir Crystal Palace í gær.







Hann spilaði þó allan tímann í gær í tapinu gegn West Ham en í tilkynningu frá lögreglu segir að henni sé kunnugt um atvikið.

Þar kemur fram að Antonio hafi ekki óskað eftir aðstoð sjúkraliða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×