Lífið

Friðrik Ómar og Tara komust áfram í úrslit

Andri Eysteinsson skrifar
Friðrik Ómar og Tara Mobee komust áfram.
Friðrik Ómar og Tara Mobee komust áfram. Mummu Lú
Friðrik Ómar Hjörleifsson og Tara Mobee tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitum Söngvakeppninnar 2019 á RÚV og er því ljóst hvaða flytjendur stíga á svið á úrslitakvöldi Söngvakeppninnar sem fram fer í Laugardalshöll 2. mars næstkomandi.

Friðrik Ómar flutti lagið Hvað ef ég get ekki elskað? en Friðrik samdi sjálfur bæði lag og texta.

Tara flutti lagið Betri án þín en Andri Þór Jónsson og Eyþór Úlfar Þórisson sömdu lag og texta.

Um síðustu helgi varð ljóst að Hera Björk komst áfram með lag sitt Eitt andartak og Hatari með lagið Hatrið mun sigra.





 



 

 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.