Karabatic hitti Teit tíu árum seinna og nú inn á vellinum Tómas Þór Þórðarson í Köln skrifar 21. janúar 2019 21:30 Teitur Örn og Karabatic nú og fyrir tíu árum. vísir/epa
Tíu ára áskorunin er það vinsælasta á veraldarvefnum í dag þar sem að fólk birtir af sér tíu ára gamlar myndir við hlið nýrra mynda til að sýna breytingu á sjálfu sér. Móðir Teits Arnar Einarssonar, landsliðsmanns í handbolta, fór aðeins aðra leið en hún birti mynd af syni sínum ásamt Nicola Karabatic frá þvi að Teitur var ungur snáði ásamt franska goðinu og svo mynd frá leik Íslands og Frakklands í fyrrakvöld þar sem að öllu eldri og sterkbyggðari Teitur reynir að glíma við þennan besta handboltamann heims. „Tíu ára áskorunin,“ skrifar Þuríður Ingvarsdóttir, móðir Teits, en bendir á að þeir félagarnir skiptu reyndar um búning fyrir seinni myndina. Nicola Karabatic deilir þessum pósti Þuríðar á opinberri Facebook-síðu sinni með 680.000 fylgjendum sínum og er heldur betur ánægður með færsluna hjá mömmu Teits. „Takk fyrir að deila þessu. Guð minn góður hvað tíminn flýgur og þessi litli drengur hefur svo sannarlega vaxið vel úr grasi,“ segir Karabatic og „taggar“ Teit í færslu sinni. Ef myndin er akkurat tíu ára gömul er Teitur tíu ára á henni en Karabatic 25 ára. Þarna er Teitur enn í yngri flokkum Selfyssinga en Karabatic leikmaður Kiel og búinn að vinna frönsku deildina fjórum sinnum með Montpellier, franska bikarinn fjórum sinnum, þýsku deildina tvívegis og Meistaradeildina tvisvar sinnum.
HM 2019 í Þýskalandi og Danmörku Tengdar fréttir Reynir að berja á hetjunum sínum sem hann fékk myndir af sér með sem barn Elvar Örn Jónsson er mikill handboltaáhugamaður og mætir nú hetjunum sínum í landsleikjum. 19. janúar 2019 07:00 Mest lesið Sprungu úr hlátri þegar stóllinn hans Alberts gaf sig: „Ragnar Reykás er mættur“ Fótbolti Úkraínski heimsmeistarinn handtekinn á flugvelli Sport Ný sönnunargögn gætu hjálpað Chiles að endurheimta bronsið Sport Salvatore Schillaci látinn Fótbolti Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Körfubolti Muna vel leikinn við Liverpool fyrir 60 árum Fótbolti Óviss um að hann sé velkominn á Oasis tónleikana Enski boltinn „Mér finnst að allar þessar krúsídúllur eigi að bíða“ Íslenski boltinn Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Körfubolti Sjáðu öll mörkin og fáránlegan leikaraskap Rüdigers Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: ÍR - ÍBV | Leita fyrsta sigursins gegn Eyjakonum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Tímabilið byrjar vel hjá Bjarka sem varð markahæstur í stórsigri Gummersbach gaf mikið eftir í seinni hálfleik Íslendingaliðið byrjar vel í titilvörninni Rakel Dögg: Lokuðum vel varnarlega og Alfa skildi liðin að sóknarlega Uppgjörið: Fram - Haukar 27-26 | Heimakonur unnu æsispennandi leik Fyrsti sigurinn hjá bæði Stjörnukonum og Framkörlum Segir að Haukur Þrastar geti gert mikið fyrir íslenska landsliðið á HM í janúar Stjarnan sótti ekki gull í greipar Eyjamanna „Þurfum að vera fljótir að læra“ Valur ekki í vandræðum í Vestmannaeyjum Íslenskt markaflóð í Svíþjóð Uppgjörið: Valur - Afturelding 31-34 | Frábær sigur gestanna „Í versta falli fer allt til fjandans, svo kemur nýr dagur“ „Alltaf gaman að spila í KA heimilinu” HK lagði Íslandsmeistarana og Grótta vann í Breiðholti Uppgjörið: KA - Haukar 26-34 | Stórsigur gestanna á Akureyri Haukur gekk frá lærisveinum Guðmundar Guðmundur Bragi gerði gæfumuninn Ein sú besta framlengir um þrjú ár Orri Freyr hafði betur gegn Viktori Gísla Birkir Fannar í Kaplakrika út leiktíðina Íslendingalið Kolstad mátti þola tap gegn stórliði Barcelona Þórir valdi enga úr gullliði Ólympíuleikanna í nýjasta hópinn Þórir ekki maður millivegarins: „Ég sem eyðilagði partýið“ Líður eins og hún geti sagt Þóri allt Fær ekki keppnisleyfi þar sem uppeldisbætur hafa ekki verið greiddar Þórir hættir sem þjálfari þeirra norsku Teitur Örn frábær og Gummersbach mætir FH Sjá meira
Reynir að berja á hetjunum sínum sem hann fékk myndir af sér með sem barn Elvar Örn Jónsson er mikill handboltaáhugamaður og mætir nú hetjunum sínum í landsleikjum. 19. janúar 2019 07:00