Listann segir Daniel standa saman af drum & bass lögum, „meðal annars í svokölluðum hálfþreps stíl (e. half-time), sem sækir innblástur sinn frá hip-hop tónlist,“ ásamt slögurum sem voru spilaðir á klúbbum Reykjavíkur þegar hann uppgötvaði senuna í kringum árið 2003 og Hausar spila enn á kvöldum sem þau standa fyrir. Slík lög ásamt nýrri lögum í tengdum tónlistarstefnum mynda listann.
Hausar halda úti vikulegu hlaðvarpi þar sem þau fylgjast grannt með nýjustu straumum og stefnum innan drum & bass tónlistarinnar, ásamt því að vera með fastakvöld á Bravó fyrsta fimmtudag hvers mánaðar.
Næst á döfinni hjá Hausum, að undanskildum föstum liðum, er að koma fram á Iceland Airwaves hátíðinni í byrjun nóvember og lofar Danni heljarinnar fjöri.