

Skólinn okkar – Illa búið að frístund
Áður en lengra er haldið skal taka skýrt fram að við í Kelduskóla erum ótrúlega heppin með starfsfólk frístundaheimilinna og eiga þau skilið miklar þakkir og hrós fyrir frábært starf. Það er gríðarlega mikill auður í þessu frábæra starfsfólki.
Kelduskóli hefur tvö húsnæði til umráða og eru þau í daglegu tali nefnd Kelduskóli – Vík (Víkurhverfi) og Kelduskóli – Korpa (Staðarhverfi). Einhver hefði haldið að fyrst að skólinn hafi tvö húsnæði til umráða að þá væri nægt pláss fyrir starfsemi skólans, sem það reyndar er, en þar sem núverandi meirihluti í borginni og Skóla- og frístundasvið (SFS) hefur að markmiði að loka einum skóla þá hefur verið tekin ákvörðun af þeirra hálfu að nýta ekki bæði húsnæðin til fulls. Það að sjálfsögðu bitnar eingöngu á börnunum, þeim sem síst skildi.
Hjartarými er skilgreint svæði innan frístundaheimilia og félagsmiðstöðva. Samkvæmt gátlistum um húsnæði frístundaheimila er miðað við að frístundaheimili hafir 1 m2 á hvert barn í hjartarými og 4 m2 á heildarrými á hvert barn. Í félagsmiðstöðvunum er miðað við að lágmarki 60 m2 í hjartarými.
Á fundi Skóla- og frístundaráðs (SFR) nr 152 má finna svar við fyrirspurn minnihlutans í SFR um stærð hjartarýmis allar félagsheimila og félagsmiðstöða í Reykjavík og svar við þeirri fyrirspurn ætti að valda mjög mörgum foreldrum áhyggjum.
15 frístundaheimili og félagsmiðstöðvar í Reykjavík uppfylla ekki þær lágmarkskröfur sem reglugerðir gera ráð fyrir. Það eitt eru sláandi upplýsingar, en við skulum okkur við Kelduskóla. Svo vitnað sé beint í svar frá Skóla- og frístundasviði (SFS) þá er þetta staðan á Galdraslóð sem er frístundaheimili staðsett í Kelduskóla-Vík:
Aðstöðuleysi háir starfseminni og erfiðlega gengur að halda utan um starfið þar sem það er staðsett á mörgum stöðum í skólarýminu. Hjartað er helmingi minna en það á að vera skv rýmissamningi frístundaheimila.
Um Pýgyn, félagsmiðstöðina í Kelduskóla-Vík segir:
Aðstöðuleysi háir starfseminni og það vantar sárlega hjartarými til að bjóða upp á notanlega aðstöðu fyrir börnin og unglingana
Til að draga saman þá er aðstöðuleysi sem háir starfseminni. Það er sláandi að hjartarýmið fyrir yngstu börnin er helmingi minna en það á að vera og það er ekki til staðar fyrir unglingana. Forstöðumenn þessara heimila hafa í nokkur ár barist fyrir því að úr þessu sé bætt en ekkert gerist. Heilbrigðiseftirlitið hefur gert alvarlegar athugasemdir en ekkert er gert til að bæta úr. Starfsfólk hefur gert athugasemdir en tala fyrir daufum eyrum. Foreldrar hafa einnig gert athugasemdir en alltaf er komið af tómum kofanum hjá SFS.
Þeirra hugmynd til að bæta starfið hefur hingað til gengið út á það að loka Kelduskóla-Korpu og fjölga umtalsvert börnum í Kelduskóla-Vík sem allir sjá að myndi eingöngu auka á aðstöðuleysið.
Markmiðið að spara pening er ofar velferð barna. Til hvers eru reglur og lög þegar þeir sem fara með völdin telja sig ekki þurfa að fylgja þeim.
Það er svo sláandi að lausnin á vandanum í Kelduskóla er mjög einföld. Það er að nýta húsnæðin tvö betur. Ef kennsla yrði í meiri mæli færð yfir í húsnæðið í Kelduskóla-Korpu væri hægt að bæta úr öllum athugasemdum samdægurs.
Að hugsa sér það er hægt að leysa þetta vandamál í dag!
En markmiðið er að loka einum skóla í norðanverðum Grafarvogi og þau sem gjalda fyrir það eru börnin.
Höfundur er þriggja barna faðir og Reykvíkingur
Tengdar fréttir

Skólinn okkar – lög 91/2008
Til eru lög um grunnskóla númer 91/2008 sem ég hvet alla foreldra, nemendur og ekki síst þá sem bera ábyrgð á skólamálum að lesa.

Skólinn okkar
Síðan mitt fyrsta barn var skráð í leikskóla hef ég tekið þátt í starfi foreldrafélaga. Hvort sem það er leikskóli, grunnskóli eða hjá íþróttafélaginu þá hefur það verið auðsótt mál að taka þátt.
Skoðun

Ert þú ung kona á leiðinni á landsfund?
Hópur ungra Sjálfstæðiskvenna skrifar

Dagur sjaldgæfa sjúkdóma 2025
Alice Viktoría Kent skrifar

Sjálfstæðisflokkurinn – Breiðfylking framtíðar
Sigvaldi H. Ragnarsson skrifar

Guðrún Hafsteins nýr leiðtogi - Sameinandi afl
Jóna Lárusdóttir skrifar

Látum verkin tala
Sigríður María Björnsdóttir Fortescue skrifar

Guðrún Hafsteinsdóttir, leiðtogi með sterka framtíðarsýn
Jón Ólafur Halldórsson skrifar

Sannanir í dómsmáli? Rithandarrannsóknir, seinni grein
Jörgen Ingimar Hansson skrifar

Glötuðu tækifærin
Guðmundur Ragnarsson skrifar

Hnignun samgangna og áhrif á ferðaþjónustu og atvinnulíf
Sverrir Fannberg Júliusson skrifar

Ísland á tímamótum – Við skulum leiða gervigreindaröldina!
Sigvaldi Einarsson skrifar

Hvað eru Innri þróunarmarkmið?
Þuríður Helga Kristjánsdóttir skrifar

Hagur okkar allra
Steinþór Logi Arnarsson skrifar

Áskoranir næstu áratuga kalla á fjármögnun rannsókna
Silja Bára R. Ómarsdóttir skrifar

Ég styð Guðrúnu Hafsteinsdóttur sem formann – en hvers vegna?
Karl Guðmundsson skrifar

Smíðar eru nauðsyn
Einar Sverrisson skrifar

Nýsköpunarlandið
Elías Larsen skrifar

Sagnaarfur Biblíunnar – Móse og boðorðin 10
Sigurvin Lárus Jónsson skrifar

Sérfræðingarnir
Sölvi Tryggvason skrifar

Af góða fólkinu og vonda fólkinu í VR og stóra biðlaunamálinu
Arnþór Sigurðsson skrifar

Venjuleg kona úr Hveragerði
Árni Grétar Finnsson,Björg Ásta Þórðardóttir skrifar

Hljóð og mynd fara ekki saman
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Ertu að grínast með þinn lífsstíl?
Halla Þorvaldsdóttir skrifar

Guðrún Hafsteins er leiðtogi
Eiður Welding skrifar

Öflugur iðnaður, sterkt samfélag – Guðrún Hafsteinsdóttir veit hvað þarf
Hópur iðnaðarmanna skrifar

Óvissuferð Hafnfirðinga í boði Orkuveitu Reykjavíkur
Kristín María Thoroddsen skrifar

Herleysið er okkar vörn
Dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir skrifar

Raddir, kyn og kassar
Linda Björk Markúsardóttir skrifar

Færni á vinnumarkaði – ný námsleið fyrir fólk með þroskahömlun
Helga Gísladóttir skrifar

Framtíðarfyrirkomulag biðlauna formanns VR
Ólafur Reimar Gunnarsson skrifar

Sannanir í dómsmáli? Rithandarrannsóknir, fyrri grein
Jörgen Ingimar Hansson skrifar