Shelvey gerði meisturunum grikk

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Shelvey fagnar jöfnunarmarki sínu.
Shelvey fagnar jöfnunarmarki sínu. vísir/getty
Jonjo Shelvey tryggði Newcastle United stig gegn Englandsmeisturum Manchester City á St. James Park í dag. Lokatölur 2-2.

Þegar tvær mínútur voru til leiksloka skoraði Shelvey með góðu skoti fyrir utan vítateig.

Sex mínútum áður hafði Kevin De Bruyne komið City í 2-1 með stórkostlegu skoti á lofti í slá og inn.

City er í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 29 stig, átta stigum á eftir toppliði Liverpool.

Newcastle er aftur á móti í 12. sæti deildarinnar með 16 stig, sex stigum frá fallsæti.

Raheem Sterling kom City yfir á 22. mínútu þegar hann skoraði með skoti í fjærhornið eftir sendingu frá David Silva. Aðeins þremur mínútum jafnaði Hollendingurinn Jetro Willems fyrir Newcastle.

De Bruyne kom City aftur yfir á 82. mínútu en Shelvey átti síðasta orðið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira