Sjáðu þrumuræðu Kristófers
KR-ingar voru eðlilega ósáttir með gang mála og í leikhléi þegar tæpar fjórar mínútur voru eftir af 3. leikhluta brýndi Kristófer Acox raustina og hélt mikla eldræðu. Þá var KR 24 stigum undir, 71-47.
Kristófer þrumaði yfir liðsfélögunum sínum og skreytti mál sitt með vel völdum blótsyrðum.
Ræða Kristófers hafði þó ekki tilætluð áhrif því bilið milli liðanna hélt áfram að breikka og spilamennska KR lagaðist ekki neitt. Á endanum munaði 43 stigum á liðunum eins og áður sagði.
KR hefur tapað tveimur leikjum í röð og fjórum af síðustu fimm leikjum sínum.
Þrumuræðu Kristófers má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Tengdar fréttir

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - KR 110-67 | Stjarnan pakkaði KR saman og fór upp að hlið toppliðanna
Stjarnan einfaldlega jarðaði KR í leik liðanna í Dominos deild karla í kvöld. Lokatölur 110-67 og sexfaldir Íslandsmeistarar KR sáu aldrei til sólar.

Björn Kristjánsson: Hrikalega veikt andlega
Björn Kristjánsson var í raun orðlaus eftir 43 stiga tap KR gegn Stjörnunni í Dominos deild karla í kvöld. Hann viðurkenndi að hann ætti í raun engin svör við því sem gerðist í kvöld en KR tapaði 110-67 í Garðabænum. Íslandsmeistararnir hafa nú tapað fjórum af síðustu fimm leikjum sínum. Björn lék 17 mínútur í kvöld, á þeim skilaði hann átta stigum og fimm stoðsendingum.

Hlynur Bærings: Finnst við eiga nóg inni
Hlynur Bæringsson fór að venju mikinn er Stjarnan einfaldlega jarðaði sexfalda Íslandsmeistara KR í Dominos deildinni í kvöld. Lokatölur 110-67 Stjörnunni í vil í ótrúlegum leik í Garðabænum. Hlynur setti 11 stig ásamt því að taka 19 fráköst. Þó Stjarnan sé jöfn Keflavík og Tindastól á toppi deildarinnar er Hlynur ekki á allt sáttur.