Sport

Sara vildi að „Beastmode“ bolirnir sínir væru íslenskir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir í einum af bolunum.
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir í einum af bolunum. Mynd/Instagram/sarasigmunds
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir er á leiðinni á heimsleikana í CrossFit þar sem hana dreymir um að fara alla leið í fyrsta sinn. Hún hefur komist á verðlaunapall og verið nálægt sigri en það er spurning hvort árið 2019 verði hennar ár.

Hlutirnir hafa ekki gengið alveg upp hjá Söru á síðustu heimsleikum en hún hefur átt frábært ár til þessa og er til alls líkleg á leikunum í ár.

Sara er gríðarlega vinsæl í CrossFit heiminum enda heillar hún flesta með bæði hreinskilni sinni og mögnuðum tilþrifum. Hún er þannig með 1,4 milljónir fylgjenda á Instagram.

Sara lét fylgjendur sína vita af því í gær að hún sé kominn með sérstakar Söru boli fyrir aðdáendur sína og vonast til að sjá sem flestar af þeim upp í stúku á heimsleikunum í Madison.

„Alltaf þegar ég keppi á mótum þá horfi ég upp í stúku og reyni að finna „Beastmode“ borðann sem fjölskyldan mín og vinir halda á. Það kveikir í mér að sjá hann og gefur mér kraft,“ sagði Sara í færslu á Instagram síðu sinni.

„Ég hugsaði því með sjálfri mér hversu frábært yrði að sjá fólk í stúkunni í „Beastmode“ bolum út um alla stúku. Ég hafði því samband við vini mína sem reka hönnunarstofu og saman bjuggum við til fjóra mismunandi boli. Þeir eru svo litríkir að það ætti að vera auðvelt að finna þá í stúkunni,“ skrifaði Sara.

Sara flytur inn „Beastmode“ bolina sína frá Íslandi en þeir eru prentaðir hér á landi en svo fluttir út. Það hefði örugglega verið ódýrara og auðveldara fyrir Söru að láta gera þessa boli erlendis en hún heldur tryggð við Ísland og þetta eru því íslenskir „Beastmode“ bolir.

Það má sjá Söru kynna „Beastmode“ bolina sína hér fyrir neðan.



 
 
 
View this post on Instagram
The BEASTMODE  t-shirts are finally out and you can purhcase them sarasigmundsdottir.com ( in bio) _ Whenever I enter the competition floor I look into the stands to see if I can spot the BEASTMODE banner that my family and friends hold because it gets me fired up and gives me strength. Then I thought to myself how incredible it would be to see people wearing BEASTMODE t-shirts in varioust places in the crowd. So I hooked up with friends of mine who run a design studio and together we created the BEASTMODE collection which consists of 4 different designs that all are colorful and strong so that they can be easily spotted from distance. _ All the t-shirts are black @Nike Tee´s and they are available in both MENS and WOMENS fit and in various sizes. Only a limited number of each t-shirt was printed! _ Please note that all t-shirts are shipped from Iceland and it might take several weeks for them to arrive. _ Thank you all for the love and support _ _ _ #Beastmode #TeamSigmundsdottir

A post shared by Sara Sigmundsdóttir (@sarasigmunds) on Jul 24, 2019 at 11:01am PDT








Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×