Lífið

A$AP Rocky ákærður fyrir líkamsárás í Svíþjóð

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Sænskur saksóknari segir að myndband af meintri árás sé alls ekki eina sönnunargagnið í málinu.
Sænskur saksóknari segir að myndband af meintri árás sé alls ekki eina sönnunargagnið í málinu. Vísir/ap
Bandaríski rapparinn A$AP Rocky sem hefur verið í haldi sænskra lögregluyfirvalda síðan 3. júlí síðastliðinn var í morgun ákærður fyrir líkamsárás.

Rapparinn, sem heitir raunverulega Rakim Mayers, er gert að sök að hafa ráðist að manni þann 30. júní síðastliðinn, rétt áður en hann átti að koma fram á tónlistarhátíð þar í landi. Atvikið náðist á myndband en það er eitt af aðalsönnunargögnum í málinu.

Sænskur saksóknari, Daníel Suneson, sagði í yfirlýsingu í morgun að hann hefði ákært rapparann og tvo meinta samverkamenn hans vegna gruns um líkamsárás.

Meint líkamsárás hafi valdið þolanda miklum skaða.

„Við höfum komist að þeirri niðurstöðu að umrætt atvik var glæpsamlegt þrátt fyrir fullyrðingar um sjálfsvörn og ögrun.“

Ákærðu verða áfram í haldi þar til mál þeirra verður tekið fyrir í dómsal. Héraðsdómur Stokkhólms mun tilkynna um dagsetningu í næstu viku.

Á myndbandinu sem farið hefur sem eldur í sinu á samfélagsmiðlum sést A$AP Rocky fleygja umræddum manni af öllu afli í götuna. Lögmaður rapparans segir að um sjálfsvörn hafi verið að ræða.

Myndskeiðið ekki eina sönnunargagnið

Suneson sagðist hafa komist að hinu gagnstæða eftir að hafa gaumgæft sönnunargögnin í málinu.

„Það er vert að taka fram að ég hef aðgang að mun meiri upplýsingum og sönnunargögnum en það sem áður hefur verið birt á samfélagsmiðlum,“ sagði Suneson og bætti við:

„Til viðbótar við myndefni af atvikinu er vert að nefna að frásögn hins slasaða af atvikinu kemur heim og saman við frásögn vitna.“

 

Löfven sagði nei við Trump

Donald Trump Bandaríkjaforseti hafði samband við Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, og til að reyna að fá A$AP Rocky lausan úr haldi. Trump sagðist persónulega geta ábyrgst rapparann. Þetta gerði hann eftir að hafa rætt málið við bandaríska rapparann Kanye West.

Fjölmiðlafulltrúi sænska forsætisráðherrans Roni Eriksson, sagði í samtali við fréttastofu AP að Löfven og Trump hefðu átt vinalegt spjall sem einkenndist af virðingu en að Löfven hefði hefði „passað sig að leggja mikla áherslu á algjört sjálfstæði sænska réttarkerfisins, saksóknara og dómstóla,“ og sagði að ríkisstjórnin mætti ekki og myndi ekki reyna að hafa áhrif á framvindu í réttarkerfinu.

Áhrifafólk í skemmtanalífinu í Hollywood hefur stigið fram og lýst yfir fullum stuðningi með rapparanum en þeirra á meðal er söngvarinn Justin Bieber, viðskiptamógúllinn Kris Jenner og rapparinn Slim Jxmmy. Þá hafa fjölmargir í bandarísku rappsenunni kallað eftir sniðgöngu á Svíþjóð.






Tengdar fréttir

Trump bauðst til að ábyrgjast A$AP Rocky persónulega

Fjölmiðlafulltrúi sænska forsætisráðherrans greindi frá því að Löfven hafi í samtali sínu við Trump lagt áherslu á sjálfstæði sænska dómskerfisins og að stjórnvöld geti ekki reynt að hafa áhrif á framgöngu málsins.

Móðir A$AP Rocky segir Svía vilja refsa syni sínum öðrum til viðvörunar

Renee Black, móðir rapparans A$AP Rocky, segist vera orðin ráðþrota. Hún hefði haldið að ákall forseta Bandaríkjanna nægði til þess að leysa Rocky úr haldi. Hún hefur aðeins einu sinni náð að tala við Rocky síðan hann var handtekinn en hún segir að hann hafi verið í góðu jafnvægi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.