Spá Vísis og Stöðvar 2 Sports fyrir Olís deild karla 2019-20:
1. sæti
2. sæti
3. sæti
4. sæti
5. sæti - (2. september)
6. sæti - Afturelding
7. sæti - Stjarnan
8. sæti - ÍR
9. sæti - KA
10. sæti - HK
11. sæti - Fram
12. sæti - Fjölnir

Fyrstu tvö tímabilin voru frábær þar sem Afturelding komst í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn. Tímabilið 2016-17 komust Mosfellingar svo í bikarúrslit. Síðustu tvö tímabil hefur liðið gefið aðeins eftir og endað í 6. sæti. Afturelding er samt orðið stöðugt efstu deildarlið sem það hefur ekki verið frá því um aldamótin.
Afturelding missti prímusmótorinn í sókninni, Elvar Ásgeirsson, og sinn jafnbesta mann síðan liðið kom upp, Árna Braga Eyjólfsson. Þorsteinn Gauti Hjálmarsson og Karolis Stropus eiga að fylla skarð Elvars í sameiningu og Guðmundur Árni Ólafsson tekur stöðu Árna Braga í hægra horninu.
Mosfellingar hafa verið afar óheppnir með meiðsli lykilmanna og Einar Andri vonast væntanlega til að geta teflt sínu sterkasta liði oftar fram en undanfarin ár.
Komnir/Farnir:
Komnir:
Karolis Stropus frá Litháen
Þorsteinn Gauti Hjálmarsson frá Fram
Sveinn Jose Rivera frá Val
Guðmundur Árni Ólafsson frá HK
Farnir:
Finnur Ingi Stefansson til Vals
Árni Bragi Eyjólfsson til KIF Kolding
Elvar Ásgeirsson til TVB Stuttgart
Kristinn Hrannar Bjarkason til Fram
Emils Kurzmineisk til Lettlands
Pálmar Pétursson hættur
Sturla Magnusson til Vals

Sóknarleikur Aftureldingar 2018/19 í tölum HBStatz
Mörk skoruð í leik - 6. sæti (27,0)
Skotnýting - 7. sæti (58,1%)
Vítanýting - 10. sæti (69%)
Hraðaupphlaupsmörk - 10. sæti (49)
Stoðsendingar í leik - 5. sæti (9,8)
Tapaðir boltar í leik - 4. sæti (8,0)
Vörn og markvarsla Aftureldingar 2018/19 í tölum HBStatz
Mörk fengin á sig í leik - 6. sæti (26,5)
Hlutfallsmarkvarsla - 5. sæti (31,7%)
Varin víti - 6. sæti (13)
Stolnir boltar - 5. sæti (81)
Varin skot í vörn - 3. sæti (59)
Lögleg stopp í leik - 9. sæti (17,3)

Markvörður - Arnór Freyr Stefánsson - 28 ára
Vinstra horn - Júlíus Þórir Stefánsson - 28 ára
Vinstri skytta - Þorsteinn Gauti Hjálmarsson - 24 ára
Miðja - Tumi Steinn Rúnarsson - 19 ára
Hægri skytta - Birkir Benediktsson - 23 ára
Hægra horn - Guðmundur Árni Ólafsson - 29 ára
Lína - Einar Ingi Hrafnsson - 35 ára
Varnarmaður - Böðvar Páll Ásgeirsson - 25 ára

Guðmundur Árni Ólafsson (f. 1990) er ekki ungur og efnilegur leikmaður eins og flestir í þessum flokki. Hann er hins vegar kominn á fullt aftur í handboltann eftir hlé og hefur litið afar vel út á undirbúningstímabilinu. Guðmundur Árni lék nánast ekkert tímabilið 2017-18 og á síðasta tímabili lék hann jafnan sem skytta með HK í Grill 66 deildinni.
Guðmundur Árni verður á sínum stað í hægra horninu í vetur og hann er frábær hornamaður. Það er ekki svo langt síðan Selfyssingurinn lék sem atvinnumaður og bankaði fast á dyrnar í A-landsliðinu. Vonandi kemst Guðmundur Árni aftur á flug því fáa leikmenn er skemmtilegra að horfa á en hann.

Einar Andri Einarsson er að hefja sitt sjötta tímabil sem þjálfari Aftureldingar. Hann hefur fest Mosfellinga í sessi í efstu deild en dreymir væntanlega um að ná sömu hæðum og fyrstu ár sín með liðið.
Prestssonurinn var áður þjálfari FH og gerði liðið að Íslandsmeisturum ásamt Kristjáni Arasyni 2011. Árið eftir komust FH-ingar aftur í úrslit. Einar Andri á tíu tímabil að baki sem þjálfari í efstu deild og lið hans hafa níu sinnum komist í úrslitakeppnina.
„Þeir eru einnig að fá mjög sterkan útlending sem kom sterkt inn í deildina með Víkingi fyrir nokkrum árum. Svo fá þeir líka inn ungan línumann í Jose sem mun bæta breiddina hjá þeim. Það mæðir mikið á Einari Andri að púsla saman breyttu liði. Nú er hann með þyngri leikmenn og það þýðir væntanlega þyngri bolti. Áhugaverðir tímar framundan,“ sagði Guðlaugur Arnarsson.

... varð Íslandsmeistari: 20 ár (1999)
... varð deildarmeistari: 19 ár (2000)
... varð meðal þriggja efstu í deildinni: 3 ár (2016)
... varð bikarmeistari: 20 ár (1999)
... komst í bikarúrslit: 2 ár (2017)
... komst í úrslitakeppni: 0 ár (2019)
... komst í undanúrslit: 2 ár (2017)
... komst í lokaúrslit: 3 ár (2016)
... féll úr deildinni: 6 ár (2013)
... kom upp í deildina: 5 ár (2014)
Gengi Aftureldingar í deildarkeppninni undanfarin átta tímabil:
2018-19 6. sæti í deildinni
2017-18 6. sæti í deildinni
2016-17 4. sæti í deildinni
2015-16 3. sæti í deildinni
2014-15 2. sæti í deildinni
2013-14 B-deild (1. sæti)
2012-13 8. sæti í deildinni
2011-12 7. sæti í deildinni
Gengi Aftureldingar í úrslitakeppninni undanfarin átta tímabil:
2018-19 Átta liða úrslit
2017-18 Átta liða úrslit
2016-17 Undanúrslit
2015-16 Lokaúrslit
2014-15 Lokaúrslit
2013-14 B-deild
2012-13 Ekki í úrslitakeppni
2011-12 Ekki í úrslitakeppni

Óvissan er kannski meiri hjá Aftureldingu en síðustu ár. Hún tengist aðallega því hvernig gengur að fylla skarð Elvars sem var bæði marka- og stoðsendingahæsti leikmaður liðsins á síðasta tímabili og mikið mæddi á honum. Þorsteinn Gauti var góður hjá Fram þar sem hann var með ótakmarkað skotleyfi en þetta er öðruvísi áskorun.
Arnór Freyr Stefánsson er einn besti markvörður deildarinnar en honum til halds og trausts eru óreyndir strákar. Arnór missti af um þriðjungi síðasta tímabils vegna meiðsla og Afturelding má ekki við því í vetur. Svo þarf Birkir Benediktsson að haldast heill sem er bjartsýni því seinheppnari leikmenn eru vandfundnir. Birkir er gríðarlega öflug skytta og það væri gaman að sjá hann eiga eitt dúndurtímabil.
Afturelding er með einn besta línumann deildarinnar í sínum röðum, Einar Inga Hrafnsson. Síðustu tvö tímabil hefur hann varla fengið boltann og verið grátlega illa nýttur. Mosfellingar þurfa að bæta úr því í vetur.
Sjötta sætið hefur orðið niðurstaðan undanfarin tvö ár og það er erfitt að sjá Aftureldingu ógna liðunum sem er spáð efstu fimm sætunum.