Tónlist

Föstudagsplaylisti Nönnu Bryndísar

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Nanna mundar Telecaster á Bunbury-tónlistarhátíðinni í Cincinatti 2016.
Nanna mundar Telecaster á Bunbury-tónlistarhátíðinni í Cincinatti 2016. Timothy Hiatt/Getty
Það þarf vart að kynna hljómsveitina sem Nanna Bryndís Hilmarsdóttir hefur verið lykilmeðlimur í frá upphafi, frægðarsól Of Monsters and Men reis hratt í upphafi þessa áratugar.

Svo hátt reis frægðarsólin að í dag er sveitin meðal þeirra frægustu af íslenskum uppruna. Til marks um það var sveitin fyrst á meðal íslenskra tónlistarmanna til að ná milljarði spilana á Spotify, í október 2017.

Sveitin vinnur hörðum höndum að sinni þriðju plötu en óvíst er hvenær von er á henni. Undanfarið hefur sveitin birt röð filmuljósmynda á samfélagsmiðlum af meðlimum sveitarinnar í hljóðveri.

Lagalistann segir Nanna einfaldlega vera einhvers konar playlista til að koma manni í stuð á föstudegi. „En svo gírar hann mann fljótt niður aftur þegar maður áttar sig á því að maður vill miklu frekar vera heima með rauðvín á trúnó.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.