Lífið

Andrea Bocelli heldur risatónleika í Kórnum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Andrea Bocelli er magnaður söngvari og heldur betur heimsþekktur.
Andrea Bocelli er magnaður söngvari og heldur betur heimsþekktur. getty/Pietro D'aprano
Ítalski söngvarinn Andrea Bocelli heldur risatónleika í Kórnum laugardaginn 23. maí, ásamt sinfóníuhljómsveit, kór og sérstökum gestum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Senu.

Ítalinn er einn ástsælasti tenór heims og hefur selt yfir 90 milljón plötur á heimsvísu. Hann átti þátt í því að færa sígilda tónlist í samtímann þar sem lögin hans hafa náð fyrsta sæti á öllum helstu topplistum heims.

Í tilkynningunni segir að Kórnum í Kópavogi verði í fyrsta sinn umbreytt í sitjandi sal, en einungis verður boðið upp á númeruð sæti og lögð áhersla á að salurinn verði hlýr og notalegur.

Bocelli kemur fram ásamt 70 manna sinfóníuhljómsveit, SinfoNord, kór frá Söngsveitinni Fílharmóníu og sérstökum gestum.

Átta þúsund manna sitjandi tónleikar

Tæplega átta þúsund sæti verða í boði á sex verðsvæðum og miðarnir kosta frá 12.990 kr. en í tilkynningunni segir að um sé að ræða stærstu sitjandi tónleika fyrr og síðar á Íslandi.

Andrea Bocelli gaf út plötuna Si Forever: The Diamond Edition 8. nóvember 2019 og er um að ræða stækkaða útgáfu af efni plötunnar Si sem toppaði vinsældarlista. Platan inniheldur dúett með Ellie Goulding og glænýtt lag með Jennifer Garner. Í kjölfarið fór hann í tónleikaferðalag um Bretland og Bandaríkin og spilaði meðal annars tvenna tónleika í Madison Square Garden. Á dögunum var platan tilnefnd til Grammy verðlauna fyrir árið 2019.

Tónleikarnir verða í tveim hlutum; fyrri hluti er sígildari og þar tekur hann þekktustu óperuaríurnar, en í seinni hluta tekur hann alla sína vinsælustu slagara. 

Miðasala hefst föstudaginn 13. desember Tix.is/bocelli.  Forsala fer fram daginn áður kl. 10 og hægt er að skrá sig í hana hér.

Að neðan má heyra nokkur af þekktustu lögum Bocelli.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.