Lífið

Hvar er best að búa? Staðan á draumahúsinu á Balí

Stefán Árni Pálsson skrifar
Orri og Kristín byggja hús á Balí.
Orri og Kristín byggja hús á Balí.
Land er dýrt á Balí en byggingarkostnaður er mjög lágur, segir Orri Helgason og Kristín Maríella Friðjónsdóttir sem fylgst var með í 4. þætti af Hvar er best að búa? á Stöð 2 í á sunnudagskvöldið. Orri slær á að byggingarkostnaður á Balí sé um það bil 20% af því sem hann er á Íslandi. Miðað við þær upplýsingar sem hægt er að nálgast hér á landi um byggingarkostnað sérbýla, án lóðar, í Reykjavík árið 2018, mætti leiða líkur að því að þau geti byggt sér þetta 220 fermetra hús með sundlaug á um 16 milljónir.

Þegar Lóa Pind og Egill Aðalsteinsson myndatökumaður heimsóttu Kristínu og Orra um miðjan október stefndu þau á að flytja inn mánuði síðar. Það hefur ekki gengið eftir - enda voru æði mörg handtök þá eftir í húsinu - en eins og sjá má í myndskeiðinu sem hér fylgir þá hefur heilmikið gerst á þeim eina og hálfa mánuði sem liðinn er. Þau reikna þó fastlega með því að geta flutt inn fyrir jól. 

Klippa: Orri og Kristín byggja draumahúsið á Balí
 

Þegar Lóa ræddi við fjölskylduna átti að vera um mánuður eftir af framkvæmdum á Balí. Það hefur örlítið dregist á langinn og vonast þau til að komast inn fyrir jól.

Þátturinn var fjórði í röðinni af 8 þáttum þar sem Lóa Pind heimsækir ásamt myndatökumanni, fólk og fjölskyldur í 9 löndum í fjórum heimsálfum. Næstu fjórir verða sýndir eftir jól, sá fyrsti 12. janúar.

Í þáttunum sem eftir eru heimsækja þau Íslendinga sem létu drauminn um að búa í útlöndum rætast, m.a. flugvirkja og markþjálfa í Englandi, eldri borgara sem njóta lífsins á Spáni, fyrrverandi lögregluþjón og fyrrverandi dönskukennara hjá tölvuleikjarisa á Kýpur og hjón sem ákváðu að selja allt sitt og flakka um veröldina á heimasmíðuðum húsbíl.

Framleiðandi og leikstjóri þáttanna er Lóa Pind Aldísardóttir, myndatökumenn eru Lúðvík Páll Lúðvíksson og Egill Aðalsteinsson, klippingu annast Ólafur Þór Chelbat, Tumi Bjartur Valdimarsson og Guðni Hilmar Halldórsson. Framleitt af Lóa Production fyrir Stöð 2.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.