Bíó og sjónvarp

Fyrsta stiklan úr nýrri þáttaröð af Killing Eve

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sandra Oh fékk Emmy-verðlaun á dögunum.
Sandra Oh fékk Emmy-verðlaun á dögunum.
Þættirnir Killing Eve hófu göngu sína á síðasta ári og voru þeir á dagskrá Stöðvar 2. Þættirnir slógu rækilega í gegn en þær Sandra Oh og Jodie Comer fara með aðalhlutverkin.

Í næsta mánuði hefst önnur þáttaröðin, nánar tiltekið 14. apríl. Á dögunum kom út ný stikla úr seríunni en Sandra Oh vann til að mynda til Emmy-verðlauna fyrir hlutverk sitt í þáttunum.

Fyrsta þáttaröðin er öll aðgengileg á Stöð 2 Maraþon en hér að neðan má sjá nýtt brot úr næstu seríu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.