Upp er runninn 16. desember. Þriðji í aðventu kom og fór. Aðeins átta dagar til jóla.
Vísir ætlar að gleðja lesendur sína með jóladagatali þar sem leitað verður í gullkistuna á sjónvarps- og útvarpsvefnum. Óhætt er að segja að þar sé hægt að gleyma sér við áhorf á gamalt og gott efni.
Líklega hafa fá myndbönd vakið jafnmikla athygli í gegnum tíðina og myndband úr öryggismyndavél í bílakjallaranum við Höfðatorg í október 2014. Þar sést ökumaður hvolfa bíl sínum við að reyna að bakka á fullum hraða á hlið bílkjallarans.
