Lífið

Sláandi stikla úr Leaving Neverland

Stefán Árni Pálsson skrifar
Báðir rekja þeir meint ofbeldi í miklum smáatriðum í myndinni.
Báðir rekja þeir meint ofbeldi í miklum smáatriðum í myndinni.
Tveir menn lýsa grófum kynferðisbrotum bandaríska söngvarans Michael Jacksons gegn þeim í nýrri heimildarmynd, Leaving Neverland, sem HBO mun sýna í tveimur hlutum 3. og 4. mars.

Mennirnir halda því fram að Jackson hafi misnotað þá þegar þeir voru börn og rekja brotin í miklum smáatriðum í myndinni.

Jackson lést árið 2009 en ásakanir um meint kynferðisbrot hans gegn ungum drengjum hafa lengi loðað við hann og feril hans. Hann þvertók þó ætíð fyrir allt slíkt á meðan hann lifði.

Þekktasta dæmið er líklega frá árinu 1993 en þá var hann sakaður um að hafa brotið á Jordy Chandler, þrettán ára pilti, árið 1993 og vakti málið heimsathygli. Jackson og fjölskylda Chandler komust loks að samkomulagi um sáttagreiðslu upp á 23 milljónir Bandaríkjadala.

Í Leaving Neverland er rætt við þá Wade Robson og James Safechuck sem halda því báðir fram að Jackson hafi misnotað þá þegar þeir voru börn.

Nú hefur HBO gefið út nýja stiklu úr heimildarmyndinn og er hún nokkuð sláandi en í myndinni er greinilega farið ítarlega yfir þann tíma sem Robson og Safechuck eiga að hafa verið misnotaðir.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.