Flugmálastofnun Bandaríkjanna gæti gefið flugvélaframleiðandanum Boeing grænt ljós á að byrja að fljúga 737 Max-þotunum aftur í seinni hluta júní. Þoturnar hafa verið kyrrsettar vegna tveggja mannskæðra flugslysa í Indónesíu og Eþíópíu.
Heimildir Reuters-fréttastofunnar herma að fulltrúar flugmálastofnunarinnar (FAA) hafi tilkynnt Alþjóðaflugmálastofnuninni þetta á fundi í gær. Nákvæm áætlun um hvenær þoturnar gætu komist aftur í umferð liggi þó fyrir.
Alls fórust 346 manns með 737 Max-þotunum sem hröpuðu í Indónesíu í október og í Eþíópíu í mars. Galli í hugbúnaði þotunnar sem á að koma í veg fyrir ofris er talinn hafa valdið því að vélarnar hröpuðu.
Dan Elwell, starfandi forstjóri FAA, vildi ekki staðfesta tímasetninguna við Reuters.
Þá er óljóst hvenær Max-vélarnar fá leyfi til að fara aftur í loftið í Evrópu og Kanada. Yfirvöld þar hafa lýst því yfir að þau ætli að taka sína eigin ákvörðun um öryggi vélanna.
Icelandair er á meðal flugfélaga víða um heim sem höfðu fest kaup á nýjum 737 Max-þotum og hafa orðið fyrir skakkaföllum vegna kyrrsetningarinnar. Íslenska flugfélagið ætlaði að taka níu Max-vélar í notkun um miðjan júní en af því verður ekki.
