Lífið

Larry King sækir um skilnað

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Larry King og  Shawn Southwick King hafa verið gift í 22 ár.
Larry King og Shawn Southwick King hafa verið gift í 22 ár. Vísir/getty
Bandaríski spjallþáttakóngurinn Larry King, sækir um skilnað við Shawn Southwick King, eiginkonu sína til tuttugu og tveggja ára.

Heimildir slúðurmiðilsins TMZ herma að ákvörðun Kings hefði komið henni í opna skjöldu en hjónin hafa þó glímt við erfiðleika í sambandinu um margra ára skeið og áður sótt um skilnað en hætt við á síðustu stundu.

King fékk hjartaáfall í apríl á þessu ári. Læknar sögðu að veikindin væru alvarleg og að hann ætti skammt eftir ólifað. Þvert á mat læknanna hefur King þó verið á batavegi í sumar.

Hjónin eiga saman tvo syni, 19 og 20 ára, en það voru einmitt synir þeirra sem hvöttu föður sinn til að sækja um skilnað en King hefur ítrekað sakað Shawn um framhjáhald þó ekkert sé staðfest í þeim efnum. Synirnir saka þá móður sína um að hlunnfara sig í erfðaskrá.

Larry, sem er 85 ára, hefur löngum verið í hlutverki spyrils í viðtalsþáttum ýmist í sjónvarpi eða útvarpi undir hinum ýmsu nöfnum; The Larry King Show, Larry King Live, Larry King Now og Politicking with Larry King.

Shawn Southwick er einnig þekkt í bandarísku samfélagi en hún stýrði fjölmiðlaþætti á CNN um langt skeið.


Tengdar fréttir

Larry King aftur á leið á skjáinn

Hin háaldraða sjónvarpsstjarna Larry King er aftur á leið á skjáinn. King hefur samið um að koma reglulega fram í hinum þekkta grínþætti The Daily Show.

Larry King aflýst í Hörpunni

Hætt hefur verið sýningu þáttastjórnandans heimsfræga Larry King, sem hafði áætlað að heimsækja Ísland föstudaginn 23. september næstkomandi. Guðbjartur Finnbjörnsson, sem stóð að baki viðburðinum, segir ástæðuna vera dræma miðasölu.

Larry King vissi af framhjáhaldi konunnar

Spjallþáttakóngurinn Larry King og eiginkona hans til þrettán ára hafa ákveðið að skilja, en þetta er sjöunda hjónaband Kings sem fer í vaskinn.

Þessi unnu Emmy-verðlaun

Mikið var um dýrðir á Emmy-verðlaunahátíðinni sem fram fór í Los Angeles í nótt og mættu sjónvarpsstjörnurnar að vonum prúðbúnar til leiks.

Laura Bush kynnir ævisögu sína

Ólíkt eiginmanni sínum segist Laura Bush, fyrrverandi forsetafrú Bandaríkjanna, vera hlynnt hjónabandi samkynhneigðra og frelsi kvenna til að gangast undir fóstureyðingar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.