Opið bréf til Páls Óskars vegna tillögu um sniðgöngu Yair Sapir skrifar 11. febrúar 2019 16:00 Kæri Páll Óskar, Bilal og Mahmood taka þátt í Tel Aviv í Eurovision keppninni að fagna fjölbreytileika í maí á þessu ári. Mahmood, sem er hálfur Egypti og hálfur Ítali, verður fulltrúi Ítalíu og Bilal Hassani, ungur samkynhneigður Marokkóbúi, verður fulltrúi Frakklands. Báðir hafa þeir arabiskan, múslímskan bakgrunn. Bilal væri líklegast dáinn ef hann hefði ekki flutt frá Marokkó. Vegna sæmdarmenningar og hefðar er ekkert svigrúm fyrir fjölbreytileika þar. Samkvæmt Amnesty International kúgar palestínska heimastjórnin og Hamas ítrekað þegna sína á palestínsku sjálfstjórnarsvæðunum. Þar að auki hafa ekki farið fram forsetakosningar á palestínsku sjálfstjórnarsvæðunum síðan árið 2005. Samkynhneigðir hafa þar engin réttindi! Hundruð Palestínumanna hafa flúið til Ísraels eftir að palestínska sjálfstjórnin tók yfir á Vesturbakkanum og Gaza svæðinu. Vegna ótta um líf sitt hafa þessir Palestínumenn fengið pólitískt hæli í Ísrael. Ísrael fagnar fjölbreytileika! Finnst þér ennþá að það eigi að sniðganga Eurovision keppnina í Ísrael? Ég hef séð og hitt persónulega marga af svokölluðum vinum Palestínu sem í raun hafa reynst meiri óvinir Ísraels og/eða gyðinga en vinir Palestínumanna. Sem sannur vinur Palestínumanna, af hverju vinnur þú ekki að uppbyggilegum samræðum, uppbyggingu innviða, menntun, heilbrigðismálum, velferðarmálum og mannréttindum á sjálfstjórnarsvæðunum? Af hverju gagnrýnirðu ekki þá staðreynd að engar forsetakosningar hafa verið haldnar á sjálfstjórnarsvæðunum síðan 2005 og að Palestínumönnum hafi þannig verið meinað að segja skoðanir sínar og byggja upp sína eigin framtíð? Af hverju gagnrýnirðu ekki þá staðreynd, að leiðtogar Palestínumanna nota milljarða styrki frá heimsbyggðinni í spillingu og hryðjuverkastarfsemi frekar en að fjármagnið nýtist þegnunum? Samræður, menntun, mannréttindi og velferðarmál stuðla að velgengni í heiminum en ekki það að sniðganga! Sökum skorts á góðu heilbrigðiskerfi leita Palestínumenn til Ísraels. Sökum skorts á atvinnutækifærum sækja Palestínumenn vinnu til Ísraels. Þegar ísraelska Sodastream lokaði verksmiðjum sínum á Vesturbakkanum, vegna viðskiptaþvingana og pressu frá BDS (Boycott, Divestment, Sanctions-hreyfingunni) árið 2015, misstu hundruð Palestínumanna vinnuna. Viðskiptaþvinganirnar fóru hljóðlega fram því velferð Palestínumanna skiptir BDS ekki máli. Þar af leiðandi velti ég því fyrir mér hvort fylgjendur viðskiptaþvinganna séu í raun og veru að taka tillit til Palestínumanna sem mannfólks sem hafa burði til að bera ábyrgð á sínum eigin gjörðum og örlögum. Eða hvort Palestínumenn séu eingöngu hlutir, ævarandi fórnarlömb, fallbyssufóður og eingöngu tæki til að koma í veg fyrir sjálfstætt ríki Gyðinga? Heilagt stríð mun ekki gefa Palestínumönnum eigið ríki. Það mun eingöngu þvinga Ísrael til að tryggja öryggi borgara sinna, þ.m.t. milljóna Araba. Ef þú virkilega trúir á lýðræði, mannréttindi, réttindi samkynhneigðra og fjölbreytileika, styddu þá Ísrael og dreifðu þessum gildum meðal Palestínumanna líka! Það myndi gefa þeim tækifæri til að skilgreina sig sem einstaklinga og sem þjóð! Hatursherferð gegn Ísrael, Páll Óskar, mun styrkja spillt og hræðilegt palestínskt samfélag þar sem engin mannréttindi, menntun, heilbrigðis- og velferðarkefi þrífast. Ef þú trúir raunverulega á fjölbreytileika, fylgdu þá Nettu, fylgdu Mahmood, fylgdu Bilal og þúsundum annarra, hvort sem um er að ræða gagnkynhneigða, samkynhneigða, transfólk, gyðinga, múslima, kristið fólk, trúleysingja eða aðra, í mestu hátíð fjölbreytileikans í Mið-Austurlöndum. Þú veist jafn vel og ég, Páll Óskar, að hvergi í Mið-Austurlöndum nema Ísrael væri svona hátíð framkvæmanleg!Yair Sapir er tónlistarmaður og doktor í norrænum málvísindum búsettur í Kaupmannahöfn Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Eurovision Tengdar fréttir Páll Óskar og dagskrárstjóri RÚV tókust á um Eurovision: „Sterkara að sniðganga keppnina en að mæta á svæðið, taka þátt í partýinu og reyna að segja eitthvað innan gæsalappa“ Páll Óskar Hjálmtýsson og Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri RÚV, tókust á um Eurovision í Lestinni á Rás 1 í dag. 4. febrúar 2019 18:58 Páll Óskar biðst afsökunar á ummælum um gyðinga: „Gekk allt of langt í orðum mínum“ Segir ríkisstjórn Ísraels og Ísraelsher fá hins vegar engan afslátt frá sér. 5. febrúar 2019 21:23 Ummæli Páls Óskars um gyðinga og Helförina vekja undrun og furðu Ummæli tónlistarmannsins Páls Óskars Hjálmtýssonar um að gyðingar hafi ekki lært neitt af Helförinni og að þeir hafi saumað sig "í Evrópu á mjög lúmskan hátt á mjög löngum tíma“ hafa vakið bæðu undrun og furðu á samfélagsmiðlum. 5. febrúar 2019 14:15 Mest lesið Loftslagsávinningur Coda Terminal er gífurlegur Sigurður Loftur Thorlacius Skoðun Skaðinn í leyndri meðferð á heimilum Matthildur Björnsdóttir Skoðun Af glyðrugangi eftirlitsstofnana Ester Hilmarsdóttir Skoðun 3.200 aumingjar (mín skoðun) Ole Anton Bieltvedt Skoðun Að verða fórnarlamb íslenskra skattyfirvalda Arnar Pálsson Skoðun „Eru ekki allir pínu einhverfir í dag?“ Andrea Ólafsdóttir Skoðun Bóluefni eða veirur Ágúst Kvaran Skoðun Linnulaus þjáning íbúa á Gaza Hrafnhildur Sverrisdóttir Skoðun Um vanda stúlkna í skólum Ragnar Þór Pétursson Skoðun Tilgangur atvinnurekstrarbanns Lárus Sigurður Lárusson Skoðun Skoðun Skoðun „Eru ekki allir pínu einhverfir í dag?“ Andrea Ólafsdóttir skrifar Skoðun Betri leið til að velja keppendur inn á Ólympíuleika Pawel Bartoszek skrifar Skoðun Tilgangur atvinnurekstrarbanns Lárus Sigurður Lárusson skrifar Skoðun Að verða fórnarlamb íslenskra skattyfirvalda Arnar Pálsson skrifar Skoðun Loftslagsávinningur Coda Terminal er gífurlegur Sigurður Loftur Thorlacius skrifar Skoðun Bóluefni eða veirur Ágúst Kvaran skrifar Skoðun Skaðinn í leyndri meðferð á heimilum Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Af glyðrugangi eftirlitsstofnana Ester Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Linnulaus þjáning íbúa á Gaza Hrafnhildur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Munurinn á þjóðerniskennd versus sálernis þarfar upplifun Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Verða rangfærslur að sannleika, ef þær eru endurteknar nógu oft!? Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Svifhrifavaldar Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Forseti ÍSÍ hvattur til að hefja tiltektina í eigin starfsemi Sigurður G. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvernig og hvenær en ekki hvort Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Það er víst hægt að semja um aðildarskilmála! Mörg dæmi sanna það! Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Orðatónar: Aukinn orðaforði og lesskilningur barna með íslenskri tónlist Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Tilfinningalegur athyglisbrestur og heilbrigt tilfinningalíf Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Reglurnar eru óumsemjanlegar Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun 3.200 aumingjar (mín skoðun) Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Ber endurhæfing ávöxt? skrifar Skoðun Heimur á heljarþröm skrifar Skoðun Foreldrar á 4. vaktinni Sara Rós Kristinsdóttir,Lóa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Norður-Kórea er víða Ingvar Smári Birgisson skrifar Skoðun Það getur verið gott að búa til steind Ari Trausti Guðmundsson skrifar Skoðun Uppskeruhátíð öldrunarfræða á Norðurlöndum Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Gullverðlaun í mengun Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar Skoðun Gen og glæpir Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun 10 tæknilegir yfirburðir rafbíla Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar Skoðun Um vanda stúlkna í skólum Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Land, borgir og samgöngur Guðjón Sigurbjartsson skrifar Sjá meira
Kæri Páll Óskar, Bilal og Mahmood taka þátt í Tel Aviv í Eurovision keppninni að fagna fjölbreytileika í maí á þessu ári. Mahmood, sem er hálfur Egypti og hálfur Ítali, verður fulltrúi Ítalíu og Bilal Hassani, ungur samkynhneigður Marokkóbúi, verður fulltrúi Frakklands. Báðir hafa þeir arabiskan, múslímskan bakgrunn. Bilal væri líklegast dáinn ef hann hefði ekki flutt frá Marokkó. Vegna sæmdarmenningar og hefðar er ekkert svigrúm fyrir fjölbreytileika þar. Samkvæmt Amnesty International kúgar palestínska heimastjórnin og Hamas ítrekað þegna sína á palestínsku sjálfstjórnarsvæðunum. Þar að auki hafa ekki farið fram forsetakosningar á palestínsku sjálfstjórnarsvæðunum síðan árið 2005. Samkynhneigðir hafa þar engin réttindi! Hundruð Palestínumanna hafa flúið til Ísraels eftir að palestínska sjálfstjórnin tók yfir á Vesturbakkanum og Gaza svæðinu. Vegna ótta um líf sitt hafa þessir Palestínumenn fengið pólitískt hæli í Ísrael. Ísrael fagnar fjölbreytileika! Finnst þér ennþá að það eigi að sniðganga Eurovision keppnina í Ísrael? Ég hef séð og hitt persónulega marga af svokölluðum vinum Palestínu sem í raun hafa reynst meiri óvinir Ísraels og/eða gyðinga en vinir Palestínumanna. Sem sannur vinur Palestínumanna, af hverju vinnur þú ekki að uppbyggilegum samræðum, uppbyggingu innviða, menntun, heilbrigðismálum, velferðarmálum og mannréttindum á sjálfstjórnarsvæðunum? Af hverju gagnrýnirðu ekki þá staðreynd að engar forsetakosningar hafa verið haldnar á sjálfstjórnarsvæðunum síðan 2005 og að Palestínumönnum hafi þannig verið meinað að segja skoðanir sínar og byggja upp sína eigin framtíð? Af hverju gagnrýnirðu ekki þá staðreynd, að leiðtogar Palestínumanna nota milljarða styrki frá heimsbyggðinni í spillingu og hryðjuverkastarfsemi frekar en að fjármagnið nýtist þegnunum? Samræður, menntun, mannréttindi og velferðarmál stuðla að velgengni í heiminum en ekki það að sniðganga! Sökum skorts á góðu heilbrigðiskerfi leita Palestínumenn til Ísraels. Sökum skorts á atvinnutækifærum sækja Palestínumenn vinnu til Ísraels. Þegar ísraelska Sodastream lokaði verksmiðjum sínum á Vesturbakkanum, vegna viðskiptaþvingana og pressu frá BDS (Boycott, Divestment, Sanctions-hreyfingunni) árið 2015, misstu hundruð Palestínumanna vinnuna. Viðskiptaþvinganirnar fóru hljóðlega fram því velferð Palestínumanna skiptir BDS ekki máli. Þar af leiðandi velti ég því fyrir mér hvort fylgjendur viðskiptaþvinganna séu í raun og veru að taka tillit til Palestínumanna sem mannfólks sem hafa burði til að bera ábyrgð á sínum eigin gjörðum og örlögum. Eða hvort Palestínumenn séu eingöngu hlutir, ævarandi fórnarlömb, fallbyssufóður og eingöngu tæki til að koma í veg fyrir sjálfstætt ríki Gyðinga? Heilagt stríð mun ekki gefa Palestínumönnum eigið ríki. Það mun eingöngu þvinga Ísrael til að tryggja öryggi borgara sinna, þ.m.t. milljóna Araba. Ef þú virkilega trúir á lýðræði, mannréttindi, réttindi samkynhneigðra og fjölbreytileika, styddu þá Ísrael og dreifðu þessum gildum meðal Palestínumanna líka! Það myndi gefa þeim tækifæri til að skilgreina sig sem einstaklinga og sem þjóð! Hatursherferð gegn Ísrael, Páll Óskar, mun styrkja spillt og hræðilegt palestínskt samfélag þar sem engin mannréttindi, menntun, heilbrigðis- og velferðarkefi þrífast. Ef þú trúir raunverulega á fjölbreytileika, fylgdu þá Nettu, fylgdu Mahmood, fylgdu Bilal og þúsundum annarra, hvort sem um er að ræða gagnkynhneigða, samkynhneigða, transfólk, gyðinga, múslima, kristið fólk, trúleysingja eða aðra, í mestu hátíð fjölbreytileikans í Mið-Austurlöndum. Þú veist jafn vel og ég, Páll Óskar, að hvergi í Mið-Austurlöndum nema Ísrael væri svona hátíð framkvæmanleg!Yair Sapir er tónlistarmaður og doktor í norrænum málvísindum búsettur í Kaupmannahöfn
Páll Óskar og dagskrárstjóri RÚV tókust á um Eurovision: „Sterkara að sniðganga keppnina en að mæta á svæðið, taka þátt í partýinu og reyna að segja eitthvað innan gæsalappa“ Páll Óskar Hjálmtýsson og Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri RÚV, tókust á um Eurovision í Lestinni á Rás 1 í dag. 4. febrúar 2019 18:58
Páll Óskar biðst afsökunar á ummælum um gyðinga: „Gekk allt of langt í orðum mínum“ Segir ríkisstjórn Ísraels og Ísraelsher fá hins vegar engan afslátt frá sér. 5. febrúar 2019 21:23
Ummæli Páls Óskars um gyðinga og Helförina vekja undrun og furðu Ummæli tónlistarmannsins Páls Óskars Hjálmtýssonar um að gyðingar hafi ekki lært neitt af Helförinni og að þeir hafi saumað sig "í Evrópu á mjög lúmskan hátt á mjög löngum tíma“ hafa vakið bæðu undrun og furðu á samfélagsmiðlum. 5. febrúar 2019 14:15
Skoðun Verða rangfærslur að sannleika, ef þær eru endurteknar nógu oft!? Ole Anton Bieltvedt skrifar
Skoðun Forseti ÍSÍ hvattur til að hefja tiltektina í eigin starfsemi Sigurður G. Guðjónsson skrifar
Skoðun Það er víst hægt að semja um aðildarskilmála! Mörg dæmi sanna það! Ole Anton Bieltvedt skrifar
Skoðun Orðatónar: Aukinn orðaforði og lesskilningur barna með íslenskri tónlist Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar