Lífið

Milljarður rís í sjöunda sinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Frábærir listamenn koma fram á fimmtudaginn og halda uppi fjörinu.
Frábærir listamenn koma fram á fimmtudaginn og halda uppi fjörinu.
Millarður rís er haldinn hér á landi í sjöunda sinn þar sem fólk kemur saman og dansar fyrir heimi þar sem allir, óháð kyni og kynhneigð, fá að njóta sömu tækifæra án ótta við ofbeldi. Milljarður rís verður fimmtudaginn 14. febrúar. UN Women fagnar 30 ára afmæli í ár en þetta kemur fram í tilkynningu frá UN Women.

Líkt og fyrri ár er það plötusnúðurinn DJ Margeir sem stýrir tónlistinni og fær hann til liðs við sig glæsilegan hóp tónlistarfólks sem sér til þess að mannskapurinn hristi sig og skeki. Fram koma Diskódúettinn Þú og ég, Amabamadama, Auður, Svala Björgvins, GDRN, Högni, Daníel og Cell7.

Þá verður nýja FO-húfan til sölu á staðnum auk nýs FO söluvarnings og rennur ágóðinn til verkefna UN Women sem vinna að því að uppræta kynbundið ofbeldi um allan heim.

„Við hvetjum fólk til að mæta með FO-húfurnar sínar á svæðið og taka sínar eigin FO myndir en InstaMyndir verða á staðnum,“ segir í tilkynningunni.

Í tilkynningunni segir að ein af hverjum þremur konum um heim allan verði fyrir kynbundnu ofbeldi einhvern tímann á lífsleiðinni, það er um ein milljón kvenna.

Í fyrra var viðburðurinn haldinn í yfir 200 löndum víðs vegar um heiminn. Á Íslandi kom fjöldi fólks saman á öllum aldri um allt land. Í ár verður aftur dansað um allan heim sem og víða um landið.

Milljarður rís verður haldinn í Hörpu í Reykjavík, félagsheimilinu Herðubreið á Seyðisfirði, Fosshótel á Húsavík, íþróttahúsinu á Sauðárkróki, íþróttahúsinu Neskaupstað, íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum, í Hnyðju í Hólmavík, Nýheimum á Höfn í Hornafirði, íþróttahúsinu Iðu á Selfossi og Hofi á Akureyri.

Frí bílastæði við Hörpu á meðan viðburði stendur en viðburðurinn stendur frá 12:15-13:00.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.