Helgi: Frábær völlur en þurrt grasið fór eitthvað illa í okkur Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 6. júlí 2019 17:00 Helgi Sigurðsson hefur náð góðum árangri með Fylki vísir/bára
Fylkir tapaði 2-0 fyrir ÍA á Akranesi í dag. Helgi Sigurðsson sagði að sínum mönnum hafi gengið illa að spila boltanum á grasinu á Norðurálsvellinum, en Fylkir leikur heimaleiki sína á gervigrasi. „Mér fannst vanta ákefð og meiri græðgi í mína menn í dag,“ sagði Helgi eftir leikinn. „Við vorum bara því miður ekki nógu ákveðnir í okkar sóknarleik eins og við höfum verið í undanförnum leikjum.“ „Við fundum engin svör við varnarleik Skagamannanna. Vorum svo sem alveg jafn góðir hérna úti á vellinum, en þeir voru betri á þeim svæðum sem skipta máli.“ Það hefur aðeins verið rætt um óstöðugleika í leik Fylkis, þeir náðu í tvo góða sigra en fengu svo skell á móti Stjörnunni, komu til baka á móti KA og náðu í sigur í síðasta leik en mæta svo frekar daufir til leiks hér. Hvað þarf Helgi að gera til þess að ná upp stöðugleika í leik sinna manna? „Maður reynir að rýna í allt en það er óstöðugleiki hjá flestum liðum í þessari deild, þetta er jöfn deild og það geta allir unnið alla.“ „Við þurfum bara að halda áfram. Það er hægt að fara í volæði og halda að allt sé orðið slæmt en það er það ekki. Auðvitað þurfum við að spila aðeins betur en við gerðum í dag.“ „Boltinn gekk of hægt á milli manna, fyrirgjafir ekki nógu góðar inn í teig, léleg hlaup inn í teiginn og við sköpum bara lítið í þessum leik. Gerðum ekki nóg til þess að eiga eitthvað meira skilið.“ „Ég veit ekki hvort það var að við vorum allt í einu komnir á þurrt gras, frábær völlur og frábærar aðstæður og allt til alls, en eitthvað var þetta að fara illa í okkar menn og boltinn gekk of hægt,“ sagði Helgi Sigurðsson.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Ljótasta tækling ársins komin í íslenska boltanum“ Íslenski boltinn Danski dómarinn aftur á börum af velli Handbolti „Þetta félag mun aldrei deyja“ Enski boltinn Trump fékk gulllykil og sagði tollastríðið auka spennu fyrir HM Fótbolti Umræðan væri önnur ef um Rashford væri að ræða en ekki Grealish Enski boltinn Björgvin Páll strax kallaður aftur í landsliðið Handbolti Beckham kærður í tengslum við mál Diddy Sport Kyssti mótherja eftir að hafa sleikt annan um daginn Sport David Raya bjargaði stigi á Old Trafford Enski boltinn Laglegt mark Alberts gegn Napoli sem vildi láta reka hann af velli Fótbolti Fleiri fréttir Kveður Selfyssinga óvænt: „Það er synd að kveðja á þennan hátt“ Baðst afsökunar á tæklingunni í Garðabænum Skrautlegt mark, glæsimark og allt brjálað í sigri KR „Ljótasta tækling ársins komin í íslenska boltanum“ FH sækir liðsstyrk út fyrir landsteinana Trúir á Óla Kristjáns og Jesú Krist Í skýjunum með að hreppa Þórdísi Hrönn Níu mörk þegar KR vann ÍBV QPR vildi Þorra en Fram sagði nei Fylkismenn komust áfram á kostnað Íslandsmeistara Blika Valskonur með fullt hús og markatöluna 15-1 Thomsen mættur aftur í íslenska boltann Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val Sjá meira