Lífið

Eurovision verður ekki haldið í Amsterdam á næsta ári

Eiður Þór Árnason skrifar
Femke Halsema, borgarstjóri Amsterdam,  óskaði þeim fimm borgum sem standa eftir góðs gengis.
Femke Halsema, borgarstjóri Amsterdam, óskaði þeim fimm borgum sem standa eftir góðs gengis. Getty/AndreyKrav
Stjórnvöld í Amsterdam hafa tilkynnt að borgin muni ekki sækjast eftir því að halda Eurovision söngvakeppnina árið 2020. Fimm hollenskar borgir berjast nú um að vera fyrir valinu.

Helsta ástæðan fyrir ákvörðun yfirvalda í Amsterdam er sú að ekki tókst að finna staðsetningu innan borgarinnar sem hentaði vel fyrir keppnishaldið. Þrír staðir voru til skoðunar en þeir reyndust allir vera fullbókaðir á þeim tíma sem keppnin fer fram.

Vettvangur Eurovision þarf að vera laus í minnst átta vikur til að tryggja fullnægjandi undirbúning keppnarinnar.

Jafnvel var til skoðunar að halda keppnina utandyra á svæði sem hefur áður verið nýtt fyrir tónlistarhátíðir. Að lokum var hins vegar horfið frá þeirri tillögu þar sem skipuleggjendur töldu að sú hugmynd væri of áhættusöm og flókin í útfærslu til þess að ganga upp.

Eftir standa hollensku borgirnar Rotterdam, Utrecht, Den Bosch, Arnhem og Maastricht, sem hafa allar boðist til að halda keppnina að ári.


Tengdar fréttir

Holland vann Eurovision

Duncan Laurence, fulltrúi Hollands, bar sigur úr býtum í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva með laginu "Arcade“ og fékk 492 stig.

Vilja að dómnefndakerfið í Eurovision verði lagt niður

Hafin hefur verið undirskriftasöfnun þar sem þess er krafist að hætt verði að kalla til dómnefndir í Eurovision-söngvakeppninni og aðeins stuðst við stig úr símakosningu þegar sigurvegari keppninnar er valinn.

Öll Eurovision-vötn falla til Hollands

Hollendingar, með Duncan Laurence einan á píanóinu, eru af mörgum taldir sigurstranglegir í Eurovision í kvöld. Veðbankar um allan heim setja þá í fyrsta sæti. Liðsmenn Hatara eru klárir í kvöldið eftir aukaæfingu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.