Eldur logaði í flutningabíl á Reykjanesbraut Kristín Ólafsdóttir skrifar 31. október 2019 15:33
Reykjanesbraut var lokað í átt að höfuðborgarsvæðinu þegar eldur kom upp í flutningabíl við Hvassahraun nú á fjórða tímanum. Lið frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins hefur náð tökum á eldinum, að sögn varðstjóra. Ekki urðu slys á fólki en varðstjóri gerir ráð fyrir að bílstjórinn hafi verið einn bílnum. Ætla má að einhverjar umferðartafir verði vegna brunans. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu mun slökkvistarfi ljúka innan skamms en þá á eftir að draga bílinn af vettvangi. Þá virðist sem nokkurt tjón hafi orðið á bílnum en mynd frá vettvangi á Reykjanesbraut sýnir svartan reyk leggja frá honum og þá logar einnig töluverður eldur. Ekkert er vitað um eldsupptök á þessari stundu.Uppfært klukkan 16:20: Slökkvilið hefur slökkt eldinn í bílnum og lokið vinnu sinni á vettvangi. Bíllinn verður dreginn af vettvangi en varðstjóri gerði ráð fyrir að umferð hefði aftur verið hleypt á Reykjanesbraut, sem lokað var í aðra áttina á fjórða tímanum.Reykjanesbrautinni var lokað í aðra áttina vegna brunans. Myndin er tekin á fjórða tímanum.Mynd/Aðsend
Slökkvilið Vogar Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent Vargöldin á Haítí versnar hratt Erlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Fleiri fréttir Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Bein útsending: Hvar eru umhverfis- og loftslagsmálin í kosningabaráttunni? Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Sjá meira