Hörður og Arnór töpuðu heima fyrir Espanyol Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 3. október 2019 18:45 Hörður Magnússon og Arnór Sigurðsson. vísir/getty CSKA Moskva tapaði á heimavelli fyrir Espanyol í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í dag. Hörður Björgvin Magnússon og Arnór Sigurðsson spiluðu báðir allan leikinn fyrir CSKA en náðu ekki að koma í veg fyrir 2-0 tap. Mörk Espanyol skoruðu Wu Lei á 64. mínútu og Victor Campuzano á síðustu mínútu uppbótartímans. CSKA fer ekki vel af stað í riðlakeppninni og er búið að tapa báðum leikjum sínum. Wolverhampton Wanderers vann sterkan útisigur á Besiktas þar sem Willy Boly skoraði sigurmarkið, og eina mark leiksins, seint í uppbótartíma. Evrópudeild UEFA
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti