Stórt alþjóðlegt mót í næsta nágrenni við æfingabúðir íslenska liðsins Óskar Ófeigur Jónsson í Antalya skrifar 11. nóvember 2019 12:30 Opna tyrkneska meistaramótið í golfi fór fram rétt hjá hóteli íslenska knattspyrnulandsliðsins og lauk í gær. vísir/óój
Strákarnir í karlalandsliðinu í fótbolta æfa á slóðum opna tyrkneska mótsins í golfi sem lauk í gærkvöldi. Það eru nokkrir áhugasamir kylfingar í íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu og það er örugglega freistandi fyrir þá að spila einn hring hér í Antalya. Þetta er algjör ferðamannaparadís og það vantar ekki golfvellina í kringum hótel íslenska liðsins. Þetta eru líka mjög flottir golfvellir eins og sést á því að opna tyrkneska mótið í golfi, sem er hluti af Evrópumótaröðinni, fór fram á Montgomerie Maxx Royal golfvellinum hér í Antalya á síðustu dögum og lauk um helgina. Golfvöllurinn þar sem að Englendingurinn Tyrrell Hatton vann sigur á opna tyrkneska mótinu í golfi eftir að hafa haft betur í sex manna umspili, er aðeins í fjórtán mínútna bílferð frá hóteli íslenska liðsins. Hatton, Matthias Schwab, Kurt Kitayama, Victor Perez, Benjamin Hebert og Erik van Rooyen kláruðu allir hringina fjóra á tuttugu höggum undir pari og í fyrsta sinn í sögu Evrópumótaraðarinnar fór fram sex manna umspil. Það var löngu komið myrkur hér í Antalya þegar Tyrrell Hatton tryggði sér sigurinn og lokaholurnar voru spilaðar í flóðljósum.
EM 2020 í fótbolta Mest lesið McGregor fundinn sekur og þarf að borga tugi milljóna í skaðabætur Sport Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Íslenski boltinn „Bjóst bara við því að við værum að fara vinna árið eftir“ Körfubolti Stelpurnar okkar rændar jöfnunarmarki? Handbolti Í beinni: Arsenal - Nottingham Forest | Skytturnar mæta spútnikliðinu Enski boltinn Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Enski boltinn Hvað gera flokkarnir fyrir afreksfólk í íþróttum? Sport Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Fótbolti Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Enski boltinn Aðalþjálfari Ítalíu var með hausverk og horfði ekki á seinni hálfleik Körfubolti Fleiri fréttir Í beinni: Milan - Juventus | Gamla konan enn taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Í beinni: Arsenal - Nottingham Forest | Skytturnar mæta spútnikliðinu Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Annað áfall fyrir Hörð sem fór til sama læknis og Rodri Ísland mætir Kósovó í sérstöku umspili Írarnir hans Heimis mæta Búlgörum Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ed Sheeran hjálpaði Ipswich að ná í leikmann rétt fyrir Taylor Swift tónleika Alexia Putellas með sitt tvö hundruðasta mark fyrir Barcelona Nýr Etihad leikvangur hinum megin við Atlantshafið Guardiola samdi til ársins 2027 Segja að Haaland og félagar fái gjafapakka frá FIFA Sædís og félagar fyrstar til að stoppa Bæjara Rannsókn á hegðun David Coote enn í fullum gangi Tuchel „stelur“ Hilario frá Chelsea og tekur hann inn í teymið Sjá meira