Innlent

Þau eru tilnefnd sem maður ársins 2019

Tinni Sveinsson skrifar
Þau sem eru tilnefnd til Manns ársins.
Þau sem eru tilnefnd til Manns ársins. Vísir

Vísir og Bylgjan standa fyrir vali á manni ársins 2019 og geta lesendur nú tekið þátt í að velja þá manneskju sem þeim þykir eiga nafnbótina skilið. Um tvö þúsund tilnefningar bárust í gegnum vefinn og í símatíma Reykjavík síðdegis.

Þorgeir, Kristófer og Bragi í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni og blaðamenn Vísis fóru yfir tilnefningarnar og rökstuðninginn sem þeim fylgdi. Nú er búið að yfirfara þær og ljóst hvaða tíu aðilar berjast um titilinn.

Hin tilnefndu má sjá hér að neðan í stafrófsröð. Neðst má svo greiða atkvæði. Kosning stendur til 30. desember. Tilkynnt verður um valið í þættinum Reykjavík árdegis á Bylgjunni á gamlársdag.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir

Áslaug Arna varð yngsti kvenráðherra sögunnar þegar hún tók við embætti dómsmálaráðherra í september. Stóð í ströngu í þriðja orkupakkanum og málefnum ríkislögreglustjóra.

Bjartmar Leósson

Bjartmar vann óeigingjarnt starf á árinu þegar hann fann tugi stolinna hjóla og kom þeim aftur í réttar hendur.

Björgunarsveitarfólk landsins

Íslenskar björgunarsveitir stóðu vaktina í ár sem endranær. Ekki síst í gríðarlegu óveðri sem reið yfir landið í desember.

Eliza Reid

Forsetafrúin birti opinskáa grein í New York Times á árinu þar sem hún sagðist ekki vera handtaska eiginmanns síns og benti á að hlutverk maka ráðamanna væri skrýtið og óskilgreint.

Helgi Seljan

Rannsakaði gögn um framgang Samherja í Namibíu og varpaði ljósi á vafasamar viðskiptafléttur, mútur og ólögleg athæfi namibískra ráðamanna í þáttunum Kveik og útgefinni bók.

Hildur Guðnadóttir

Stillti sér í fremstu röð kvikmyndatónskálda með tónlist sinni við kvikmyndina Joker og sjónvarpsþáttaröðina Chernobyl. Hlaut tilnefningar til og var heiðruð með eftirsóttustu fagverðlaunum.

Jóhannes Stefánsson

Kom miklum fjölda gagna í hendur Wikileaks og sagði frá starfsárum sínum hjá Samherja. Úr varð umfjöllun Kveiks, Al Jazeera og fleiri fjölmiðla sem orsakaði meðal annars afsagnir og rannsókn á ráðherrum í Namibíu.

Margrét Lillý Einarsdóttir

Steig fram og sagði sögu sína í fréttaskýringaþættinum Kompás. Lýsti því hvernig fjölskylda hennar, barnavernd, skólakerfið og Seltjarnarnesbær brugðust þegar hún ólst upp við slæmar aðstæður hjá móður sinni.

Ragnar Þór Ingólfsson

Formaður VR lét ekki deigan síga í baráttu sinni fyrir kjörum verkafólks. Stóð í ströngu við gerð lífskjarasamninga og lét vel í sér heyra þegar honum ofbauð óréttlæti.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

Formaður Miðflokksins fór fyrir flokki sínum sem setti met á Alþingi í málþófi í heitum umræðum um þriðja orkupakkann. Miðflokkurinn mældist á árinu sem næst stærsti flokkur landsins.



Tengdar fréttir

Mugison Maður ársins á Bylgjunni

Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, var valinn maður ársins hjá hlustendum Bylgjunnar nú í morgun. Tilkynnt var um valið í þættinum "Reykjavík árdegis“ en um stjórnartauma þar héldu þeir Kristófer Helgason, Þorgeir Ástvaldsson og Bragi Guðmundsson. Þeir eru vanari að vera í loftinu síðdegis en í dag, gamlársdag, varð breyting á.

Eiríkur Ingi maður ársins á Bylgjunni

Eiríkur Ingi Jóhannsson, sjómaður sem komst af eftir hryllilegan sjóskaða fyrr á árinu, er maður ársins á Bylgjunni árið 2012. Kosning fór fram bæði á Vísir.is sem og á Bylgjunni þar sem hlustendur hringdu inn og greiddu atkvæði sitt. Eiríkur Ingi fór með afgerandi sigur í kosningunni.

Edda Heiðrún maður ársins hjá Reykjavík síðdegis á Bylgjunni

Edda Heiðrún Backman leikkona er maður ársins í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Tilkynnt var um þetta fyrir stundu og sigraði Edda með yfirburðum. Kjörinu var skipt í tvennt en fyrst gat fólk farið inn á Vísi og kosið hvern sem er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×