Liverpool þarf að sjá meira af þessum Salah Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. mars 2019 14:30 Mohamed Salah. Getty/Robbie Jay Barratt
Myndband á fésbókarsíðu Mohamed Salah sýnir manninn sem stuðningsmenn Liverpool elska en hafa séð alltof lítið af að undanförnu. Egyptinn Mohamed Salah hefur ekki verið líkur sjálfum sér á nýju ári og það hefur komið mikið niður á sóknarleik Liverpool liðsins. Mohamed Salah er aðeins búinn að skora eitt mark í síðustu sjö leikjum sínum í deild og Meistaradeild og hefur heldur ekki náð að leggja upp mark í þeim.Mohamed Salah is not shooting as much as he was. According to Opta, he has gone from averaging 4.4 shots per 90 minutes last season to 3.4 in the current campaign. It is a drop of more than 20 per cent.https://t.co/awzB3fcrqNpic.twitter.com/WUfVRmN3oH — Anfield HQ (@AnfieldHQ) March 4, 2019Liverpool liðið hefur líka aðeins unnið 2 af þessum 7 leikjum því fimm þeirra hafa endaði með jafntefli. Liverpool hefur ekki náð að skora í þremur leikjanna og aðeins eitt mark í tveimur til viðbótar. Þetta er allt saman allt önnur tölfræði en framan af tímabilinu þegar Mohamed Salah virkaði óstöðvandi á hægri kantinum. Mohamed Salah skoraði 19 mörk í fyrstu 29 leikjum sínum í deild og Meistaradeild á þessari leiktíð og gaf 8 stoðsendingar til viðbótar. Það er því mikill munur á því að fara úr því að búa til eitt mark í leik í að búa til eitt mark í sjö leikjum.Mohamed Salah’s last 7 games: vs. Leicester vs. West Ham vs. Bournemouth vs. Bayern Munich vs. Man Utd vs. Watford vs. Everton A drop off in form at the worst possible time. pic.twitter.com/aeC5ISf79Y — Statman Dave (@StatmanDave) March 3, 2019 Öll vandræðin byrjuðu eiginlega þegar Mohamed Salah fékk á sig mikla gagnrýni fyrir leikaraskap en Salah hætti eiginlega að finna markið eftir 4-3 sigur á Crystal Palace 19. janúar síðastliðinn þar sem Salah skoraði tvö mörk. Fram að og með þeim leik var hann búinn að skora 6 mörk í 6 síðustu deildarleikjum og gefa 3 stoðsendingar að auki. Mótherjar Liverpool hafa lagt ofurkapp á að stoppa Mohamed Salah með góðum árangri og sjálfstraust hans virðist líka hafa borið hnekki. Salah hefur verið að fá fínustu færi en klaufagangur, seinagangur og mislagðar fætur hafa séð til þess að nánast öll renna þau út í sandinn. Auglýsingarmyndband á fésbókarsíðu Mohamed Salah sýnir hins vegar leikmann sem mikið sjálfstraust og leikmann sem hittir markið sem er eitthvað sem Mohamed Salah hefur átt í vandræðum með upp á síðkastið. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan og það geta flestir verið sammála um það að Liverpool þurfi að sjá meira af þessum Salah ætli liðið að vinna Englandsmeistaratitilinn í ár.
Enski boltinn Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Enski boltinn Fleiri fréttir Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Sjá meira