Lífið

Frikki Dór og Lísa fjárfestu í tvö hundruð fermetra einbýlishúsi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Falleg fjölskyldumynd frá árinu 2016 en saman eiga hjónin eina stúlku.
Falleg fjölskyldumynd frá árinu 2016 en saman eiga hjónin eina stúlku. Vísir/STEFÁN
Hjónin Friðrik Dór Jónsson og Lísa Hafliðadóttir keyptu í sumar einbýlishús í Hafnarfirðinum en þau seldu fallega eign í Hafnarfirðinum fyrr á þessu ári. Mbl greinir frá.

Nýja húsið er við Álfaberg 8 og það 211 fermetrar að stærð.

Húsið var byggt árið 1987 en fasteignamat eignarinnar er 78,5 milljónir en gera má ráð fyrir því að hjónin hafi greitt töluvert hærri upphæð fyrir eignina.

Þau halda sig því í Hafnarfirðinum en Frikki Dór er sem kunnugt er mikill FH-ingur. Faðir hans Jón Rúnar Halldórsson, sem verið hefur í eldlínunni hjá knattspyrnudeild FH um árabil, býr á næstu grösum. 

Bróðir Frikka Dór, tónlistarmaðurinn Jón Ragnar Jónsson, vatt aftur á móti kvæði sínu í kross og flutti á Seltjarnarnes sumarið 2018 eins og fjallað hefur verið um. Húsið er 232 fermetrar og var nýuppgert þegar þau fluttu inn.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.