Þjóðvegur 1 um Ljósavatnsskarð er enn lokaður og ekki verður athugað með mokstur fyrr en klukkan sex í fyrramálið.
Þetta kemur fram í Facebook-færslu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra.
Töluvert snjóflóð féll á veginn á fimmtudagskvölden það var hreinsað upp á föstudaginn Vegurinn var opinn í gær og voru vegfarendur beðnir um að fara varlega vegna snjóflóðahættu.Veginum var lokað klukkan tíu í gærkvöldiog hefur hann verið lokaður í allan dag.
Svæðið er snjóflóðahættusvæði og Vegagerðin er hætt að þjónusta veginn í dag. Enginn snjómokstur verður á svæðinu austan við Vaðlaheiði í dag. Kannað verður með mokstur á þessu svæði klukkan sex í fyrramálið.
Vegir eru víða lokaðir á Norðurlandi. Þannig er þjóðvegur 1 um Öxnadalsheiði enn lokaður. Þar er hins vegar verið að moka en óvíst er hvort takist að opna veginn í kvöld að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar,þar sem nálgast má nánari upplýsingar um færð á vegum.
Siglufjarðarvegur er lokaður en vegurinn um Ólafsfjarðarmúla er nú opinn þó búast megi við að honum verði lokað klukkan tíu í kvöld. Vegurinn um Víkurskarð er lokaður auk vegarins um Þverárfjall.
Þá er þjóðvegur 1 frá Mývatni að Jökuldal lokaður vegna snjóa.
Ljósavatnsskarð ekki mokað fyrr en í fyrsta lagi á morgun
![Frá Ljósavatnsskarði](https://www.visir.is/i/06BBCEF6EF84AE0FD3B05AB78D6139B8D3B42E4C2A69E25A9CF1082CA1B1950F_713x0.jpg)
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/F66A2F99235730275D06A0A711F90338C1EB721EBB97ECB4364E4A1F5E20B3C8_308x200.jpg)
Hætta á frekari rafmagnstruflunum
Hátt þrjú hundruð manns á vegum RARIK hafa nú í tæpan hálfan mánuð unnið dag og nótt við að reyna að halda dreifikerfinu gangandi.
![](https://www.visir.is/i/FC3FF2D1381DB3587987A4EF533EF89C91CC6F1600B0A9EB8C4360246E0E63E9_308x200.jpg)
Varað við slæmu veðri og vetrarfærð víða um landið
Nokkrar leiðir á landinu norðanverðu eru lokaður vegna veðurs, færðar og snjóflóðahættu.
![](https://www.visir.is/i/AFC1D8E12F559CBD050E6058418C06BADCC0FC45C87A8B06D0756758B626E12D_308x200.jpg)
Greiðfært á Suðausturlandi en ökumenn beðnir um að fara varlega
Opnað var fyrir umferð um veginn frá Lómagnúpi að Jökulsárlóni um níu leytið í dag.