Taílenska lögreglan seldi borgara bíl fullan af amfetamíni Eiður Þór Árnason skrifar 26. janúar 2020 09:25 Hér má sjá svonefndar Yaba töflur sem svipar til þeirra sem fundust í bifreiðinni. Getty/Barcroft Media
Eiganda notaðrar bifreiðar sem keypt var á uppboði hjá taílensku lögreglunni brá heldur í brún þegar hann fann mikið magn vímuefna í bílnum stuttu eftir kaupin. Um var að ræða bifreið að gerð Honda CR-V en umræddur bíll var gerður upptækur í tengslum við fíkniefnamál á síðasta ári. Efnin uppgötvuðust þegar eigandinn sendi hann á verkstæði þar sem bifvélavirki fann 94 þúsund töflur sem reyndust innihalda blöndu af metamfetamíni og koffeini. Töflurnar fundust í leynilegu hólfi bak við stuðara bílsins. Að sögn yfirvalda var þegar búið að leita af efnum í bílnum í samræmi við verklag lögreglu. Lögreglan segist ætla að framkvæma ítarlegri leit í bifreiðum áður en þær eru seldar í framtíðinni til þess að reyna að koma í veg fyrir að atvikið endurtaki sig. Áður hafði lögregla fundið 100 þúsund álíka töflur í aftursæti sömu bifreiðar. Nýr eigandi og bifvélavirkinn sem fann töflurnar munu hljóta fundarlaun fyrir samvinnu sína við lögreglu.
Taíland Mest lesið Leitin að Slater blásin af Erlent Myndir frá eldsvoðanum í Húsafelli í nótt Innlent Fleiri foreldrar í vanda með máluppeldi en áður Innlent „Ég mun ekki taka þátt í prófkjöri aftur“ Innlent Óður hundur réðst á tvo í Grafarvogi Innlent Ómögulegt að vita hvað leynist í „brúnku-nefspreyjum“ sem seld eru á samfélagsmiðlum Innlent Bandarískum kjósendum líst illa á stöðuna í forsetaslagnum Erlent „Hann á að vera hér á Íslandi“ Innlent Hiti víða yfir tuttugu stigum á Austurlandi Veður Stungumaðurinn á hlaupahjólinu áfram í haldi Innlent Fleiri fréttir Leitin að Slater blásin af Frakkar ganga að kjörborðinu Útlitið svart hjá Macron fyrir kosningar á morgun Bandarískum kjósendum líst illa á stöðuna í forsetaslagnum Ungur maður tekinn af lífi fyrir að hlusta á K-pop í Norður-Kóreu Efna til allsherjarleitar að Slater Mossack og Fonseca heitinn sýknaðir Segir Biden „algjörlega vanhæfan“ „Ég veit að ég er ekki ungur maður“ „Fíaskó næturinnar“ gæti kallað á nýjan frambjóðanda Ævilangt fangelsi fyrir morðið og nauðganirnar Biden augljóslega þyngdur af ellibelgnum Sakfelldur fyrir að myrða Emilie Meng Þakið á flugvelli í Nýju Delí hrundi vegna mikillar rigningar Biden hikandi og hás í fyrri kappræðum kosninganna Bein útsending: „Óvinsælustu frambjóðendur sem boðið hefur verið upp á“ Tilnefna Ursulu til að sitja fimm ár í viðbót Færeysku og grænlensku bætt við Google Translate Trump getur ekki gripið fram í fyrir Biden í nótt Krafa um hraða vaxtalækkun og Tækniskólinn rís í Hafnarfirði Fyrstu kappræðurnar í fjögur ár gætu skipt sköpum Eldur kviknaði í ráðuneyti Vill varúðarmerkingar á gjörunna matvöru Herforingi handtekinn eftir valdaránstilraun Valdaránstilraunin virðist hafa mistekist Segir hermennina hafa traðkað á skotsárum sínum Óttast valdaránstilraun í Bólivíu Smellti rembingskossi á eiginkonuna við heimkomuna Staðfesta skipun Ruttes Óttast að nettröll tefji rannsókn með samsæriskenningum Sjá meira