Viðskipti erlent

Spá mesta samdrætti Bretlands í 300 ár

Samúel Karl Ólason skrifar
Efnahagur Bretlands gæti dregist saman um allt að fjórðung á öðrum fjórðungi ársins.
Efnahagur Bretlands gæti dregist saman um allt að fjórðung á öðrum fjórðungi ársins. EPA/Facundo Arrizabalaga

Seðlabanki Englands spáir því að hagkerfi Bretlands muni dragast saman um 14 prósent á þessu ári, verði létt á félagsforðun í júní og fram á september. Samdrátturinn verður samkvæmt spánni sá mesti í skráðri sögu Bretlands, um þrjár aldir, og er áætlað að störfum muni fækka og atvinnuleysi hækka í átta prósent.

Tekin var sú ákvörðun að halda stýrivöxtum í 0,1% í Bretlandi í morgun.

Í spá Seðlabankans segir að verg landsframleiðsla gæti dregist saman um 25 prósent á öðrum fjórðungi ársins. Heilt yfir yrði samdrátturinn þó 14 prósent.

Spáin byggir einnig á því að breska ríkið verji miklum upphæðum til stuðnings fyrirtækja og efnahagsins, samkvæmt Sky News. Hún gerir þó ekki spá fyrir því að heimsfaraldur nýju kórónuveirunnar taki annan kipp.

Samkvæmt spánni geta Bretar fljótt náð striki á nýjan leik og hraðar en í kjölfar hrunsins 2008. Seðlabankinn segir að vöxtur gæti náð 15 prósentum árið 2021.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×