Viðskipti innlent

Flytja inn prótín til Kína

Björn L. Örvar og Yin Xiaohong handsala samninginn. Júlíus B. Kristinsson, Ólafur Ragnar Grímsson, Gunnar Snorri Gunnarsson og Jón Ásbergsson voru viðstaddir undirritunina.
Björn L. Örvar og Yin Xiaohong handsala samninginn. Júlíus B. Kristinsson, Ólafur Ragnar Grímsson, Gunnar Snorri Gunnarsson og Jón Ásbergsson voru viðstaddir undirritunina. Ljósmynd/Þórhallur, Pedromyndir

Orf líftækni hefur hafið samstarf við stærstu samsteypu lyfjafyrirtækja í Kína, Sinopharm.

„Við teljum að þetta samkomulag hafi mikla þýðingu því hér gefst okkur tækifæri til að koma okkar vörum inn á nýjan markað. Sérstaklega er þetta spennandi því við erum að tala öflugt kínverskt lyfjafyrirtæki sem hefur mikinn áhuga á þessu samstarfi. Þannig að við lítum á þetta sem einstakt tækifæri," segir Björn L. Örvar, framkvæmdastjóri Orf.

Með samkomulaginu leggja Orf og Sinopharm drög að nánu samstarfi um lyfjaþróun prótínlyfja sem síðar meir verða framleidd á Íslandi fyrir prótín­lyfjamarkað í Kína.

„Þetta gengur út á það að við erum með ákveðið prótín nú þegar sem við erum að byrja framleiðslu á. Þetta kínverska fyrirtæki mun svo halda utan um lyfjaþróun í Kína. Síðan hafa þeir áhuga á að taka að sér markaðsstarf og sölu á þessum prótínum. Og markaðurinn er gríðarlega stór," segir Björn.

Hann segir lyf í þessum flokki til dæmis gefin eftir krabbameinsmeðferð þegar byggja þurfi upp fjölda hvítra blóðkorna. Lyfin séu mjög dýr, jafnvel á Vesturlöndum. Framleiðslukostnaður hjá Orf sé hins vegar mun lægri en hjá öðrum fyrirtækjum. Þeir munu því ólíkt flestum öðrum flytja ódýra vöru inn til Kína en ekki út.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×