Körfubolti

Tveir Spánverjar í úrvalsliði HM

Pau Gasol var í úrvalsliði HM þó hann gæti ekki spilað úrslitaleikinn vegna meiðsla
Pau Gasol var í úrvalsliði HM þó hann gæti ekki spilað úrslitaleikinn vegna meiðsla NordicPhotos/GettyImages
Spánverjar áttu tvo leikmenn í úrvalsliði HM sem útnefnt var eftir úrslitaleikinn í gær. Þeir Pau Gasol og Jorge Garbajosa voru fulltrúar Spánar, en auk þeirra voru þeir Carmelo Anthony frá Bandaríkjunum, Manu Ginobili frá Argentínu og Theodoros Papaloukas frá Grikklandi í úrvalsliði keppninnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×