Lífið

„Við erum að fara út í eitthvað óvissuástand“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Það eru margar tilfinningar sem fylgja því að eignast barn. Þetta er rætt í þættinum Raunin af hlaðvarpinu Kviknar.
Það eru margar tilfinningar sem fylgja því að eignast barn. Þetta er rætt í þættinum Raunin af hlaðvarpinu Kviknar. Mynd/Þorleifur Kamban

„Allt í einu er allt breytt og ég held að við getum flestar verið sammála um það. Það er náttúrulega bara þannig að það eru hundrað nýjar spurningar sem að koma með okkur heim,“ segir Hulda Jónsdóttir Tölgyes sálfræðingur um fyrstu dagana eftir að barn kemur í heiminn. Hulda er sjálf móðir og ræddi um þessa fyrstu daga í hlaðvarpinu Kviknar. Þátturinn hefur yfirskriftina Raunin en þar er fjallað um sjálfsmynd mæðra, sambandið eftir að við eignumst barn og margt fleira.

„Allir fá nýtt hlutverk á heimilinu,“ útskýrir Hulda. Eldri systkini velta fyrir sér hverju þetta breyti og pör velta kannski fyrir sér hver forgangsröðunin eigi að vera. „Til hvers er ætlast af okkur núna vs. í gær?“

Hulda Jónsdóttir Tölgyes sálfræðingurMynd/Úr einkasafni

Mikilvægt að takmarka heimsóknir

Hulda bendir á að það þó að það sé hægt að lesa sér til, þá viti maður aldrei hvernig barn maður fær.

„Við vitum ekkert hvaða karakterar þau eru og hvaða þarfir þau hafa.“

Hún segir mikilvægt að taka þetta skref fyrir skref og átta sig á því að maður getur ekki vitað alveg hvernig þetta verður. Það fer allt eftir barninu.

„Við erum að fara út í eitthvað óvissuástand.“

Það má ekki líta þannig á að það eigi að halda gömlu rútínunni fyrstu dagana, það einfaldlega gangi ekki upp. Nýja fjölskyldan þarf rými.

„Þess vegna hvet ég fólk til þess að til dæmis ákveða hvernig það vill hafa fyrstu dagana varðandi heimsóknir og annað. Við erum ekki að fara að hella upp á kaffi og henda í marengs. Við erum að kynnast þessum nýja einstaklingi og kynnast okkur upp á nýtt.“

Hægt er að hlusta á viðtalið við Huldu í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.

Kviknar birtist á Vísi og á öðrum efnisveitum eins og Spotify, aðra hverja viku, á miðvikudögum. Þættirnir verða alls átta talsins auk einhverra aukaþátta og hver þáttur hefur sitt þema. Eldri þætti má finna hér. 

Hlaðvarpið Kviknar fjallar um getnað, meðgöngu, fæðingu og sængurlegu. Það fjallar líka um raunina eftir að barnið er komið í heiminn. Eðvarð Egilsson sér um tónlistina í þáttunum en umsjónarkona Kviknar er Andrea Eyland.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.