Lífið

Fyndnustu klúður Ronaldo á vellinum

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Enginn maður er fullkominn. Ekki einu sinni Christiano Ronaldo fyrirliði portúgalska landsliðsins í fótbolta. Við Íslendingar fengum nasaþefinn af því í gærkvöldi eftir að þessi stórkostlegi knattspyrnumaður lét svekkelsi sitt yfir jafnteflinu yfirtaka skynsemi sína. Hann rauk því út af vellinum án þess að taka í spaðann á einum einasta íslenska leikmanni og talaði niður til þeirra eftir leikinn.

Í kjölfarið hefur einn verðmætasti leikmaður heims þurft að þola heljarinnar stafrænt skítkast á Twitter og öðrum miðlum.

Það eiga allir sína slæmu daga og í gær brást Ronaldo bogalistin. Það hefur hann svo sem gert áður enda spilað all marga fótboltaleiki á sínum ferli. Hér uppi er því smá áminning um það hvernig jafnvel bestu leikmenn heims geta runnið á rassinn. Bara svona til þess að minna okkur á að ofmetnast ekki fyrir leikinn gegn Ungverjalandi á laugardag... og af því að það er sérstaklega gaman í dag að sjá Ronaldo í ruglinu.

Hann á það inni hjá okkur eftir að hafa úthúðað landi og þjóð eftir leikinn. Myndband með fyndnustu klúðrum Ronaldo á ferlinum má sjá hér uppi.


Tengdar fréttir

Sagan skrifuð í Saint-Étienne

Íslenska karlalandsliðið spilaði sinn fyrsta leik á stórmóti í gær gegn Portúgal. Í fyrsta leiknum skoraði liðið fyrsta markið og náði í fyrsta stigið. Strákarnir okkar eru komnir aftur eftir hálfs árs runu af slæmum úrslitum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.