Körfubolti

Drekarnir skoruðu 46 stig í einum leikhluta

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jakob og Hlynur urðu sænskir meistarar með Sundsvall árið 2011.
Jakob og Hlynur urðu sænskir meistarar með Sundsvall árið 2011.
Hlynur Bæringsson og Jakob Örn Sigurðarson voru í aðalhlutverkum eins og svo oft áður þegar Sundsvall Dragons lagði Borås að velli, 127-104, í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Lokatölurnar gefa ekki alveg rétt mynd af leiknum þar sem staðan var 81-81 fyrir lok fjórða leikhluta. Heimamenn tóku völdin í stöðunni 91-90 og unnu góðan sigur.

Hlynur skoraði 25 stig fyrir Drekana og Jakob stigi minna. Liðið er í efsta sæti deildarinnar með fjórtán sigra í sextán leikjum. Borås er í þriðja sæti með ellefu sigra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×