Gagnrýni

Fín fyrir fastagestina

Trausti Júlíusson skrifar
Dans á rósum.
Dans á rósum.
Dans á rósum. Dans á rósum. Eigin útgáfa

Dans á rósum er ballhljómsveit sem hefur verið starfrækt í Vestmannaeyjum síðan 1993. Mannaskipanin hefur tekið nokkrum breytingum, en strákarnir hafa verið duglegir að spila öll þessi ár, á sveitaböllum, árshátíðum, barnaskemmtunum og unglingaböllum. Þeir hafa líka tekið upp lög af og til og þeim hefur verið safnað saman á fyrstu plötu sveitarinnar.

Á plötu Dans á rósum, sem er samnefnd sveitinni, eru fjórtán lög tekin upp á árunum 2000–2012. Þetta eru mest gamlir slagarar, lög sem voru vinsæl á árum áður. Þarna eru til dæmis Jamaica sem Villi Vill söng, Dansað á dekki sem hljómsveitin Fjörefni flutti, Grásleppu-Gvendur Steina spil og Nú er gaman og María draumadís sem Deildarbungubræður gerðu vinsæl á áttunda áratugnum. Dans á rósum kemst ágætlega frá flutningnum, en bætir ekki miklu við fyrri útgáfur þessara laga.

Þetta er plata sem reikna má með að fastagestir á dansleikjum með sveitinni taki fagnandi. Hljómsveitin nýtur sín líka án efa best á balli. Platan hefur minna gildi fyrir okkur hin…

Niðurstaða: Ballhljómsveit rifjar upp gamla slagara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.