Erlent

Við erum í góðum málum.....

Óli Tynes skrifar
BARF
BARF

Hvernig heldur maður eftirminnilega upp á þrítugsafmæli sitt? Morgunþáttastjórnandi við dönsku svæðisútvarpsstöðina Radio Globus mætti nú bara samviskusamlega í sína vinnu.

Ásamt tveimur meðstjórnendum. Sem höfðu með sér risastóra rommflösku. Eldsnemma um morguninn.

Afmælisbarnið varð glaðara og glaðara eftir því sem á morguninn leið.

Innanhússrannsókn sem gerð var eftir á leiddi í ljós að hinum þrítuga manni hafði tekist að skella í sig þrjátíu sjússum þegar þættinum lauk klukkan tíu.

Honum lauk með því að hann ældi á míkrafóninn með miklum látum. Í beinni útsendingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×