Lífið

Gwyneth kyssir fyrrverandi kærasta

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikkonan Gwyneth Paltrow sást kyssa fyrrverandi kærasta sinn Donovan Leitch á hafnaboltaleik í september í fyrra en eins og margir vita tilkynnti hún í vikunni að hún og Coldplay-söngvarinn Chris Martin væru skilin.

Gwyneth og Donovan voru par í byrjun tíunda áratugarins, áður en hún byrjaði með leikaranum Brad Pitt.

Gwyneth og Chris hittust á tónleikum með Coldplay árið 2002 og gengu í það heilaga árið eftir. Saman eiga þau dótturina Apple, níu ára og soninn Moses, sjö ára.

Lengi lifir í gömlum glæðum.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×