Leita aðdáanda Ghostface Killah 8. apríl 2011 17:00 Ingibjörg Finnbogadóttir, framkvæmdastjóri RFF, leitar að eiganda geisladisks sem rapparinn Ghostface Killah áritaði. Fréttablaðið/vilhelm
Ingibjörg Finnbogadóttir, framkvæmdastjóri RFF, leitar nú logandi ljósi að ungum manni sem sótti tónleika rapparans Ghostface Killah síðasta laugardag. Pilturinn sóttist eftir eiginhandaráritun rapparans á geisladisk og tóku aðstandendur RFF-hátíðarinnar það að sér að útvega honum hana. Geisladiskurinn hefur þó ekki enn komist í hendur eiganda síns. „Starfsmaður RFF sá strákinn standa í þvögunni og veifa geisladiski og penna. Hún ákvað að athuga hvað væri í gangi og hann segir henni að hann sé að reyna að verða sér úti um eiginhandaráritun Ghostface Killah. Starfsmaðurinn ákvað að aðstoða strákinn og tekur að sér að fá diskinn áritaðan,“ útskýrir Ingibjörg. Diskurinn komst í hendur rapparans daginn eftir tónleikana og tók Ingibjörg svo aftur við honum með það að markmiði að skila honum til eiganda síns. „Við höfum ekki fundið strákinn ennþá og auglýsum því eftir honum hér,“ segir Ingibjörg. Kveðjan sem rapparinn skrifaði til hins unga manns var að sögn Ingibjargar mjög hlýleg og skrifaði hann meðal annars „Thanks for everything. Stay strong. Warm love, Ghostface“. Eigandi disksins getur nálgast hann í móttöku Fréttablaðsins.- sm
RFF Mest lesið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Maggie Smith er látin Lífið „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Íslensk börn skorti meiri aga Lífið Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Lífið Í hnapphelduna með krókódílamanninum Lífið Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Lífið Fleiri fréttir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Prince-dansarinn Cat er látinn Heillandi haustkvöld í Höfuðstöðinni Svona undirbýr Bogi sig fyrir útsendingu Sjá meira