Innlent

Harður árekstur á Vesturlandsveginum

Vesturlandsvegur. Myndin er úr safni.
Vesturlandsvegur. Myndin er úr safni.
Harður árekstur varð fyrir stundu á Vesturlandsveginum nærri Grafarholtinu. Að sögn sjónarvotts voru það sendibifreið og skutbíll sem lentu saman.

Þær upplýsingar fengust hjá lögreglunni að um aftanákeyrslu væri að ræða. Sjúkrabíll var sendur á vettvang en ekki er talið að alvarleg meiðsl hafi orðið á fólki.

Umferðaróhappið  tefur umferðina til norðurs en að sögn varðstjóra lögreglunnar er önnur akreinin opin við slysstaðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×