Lífið

Þingmaður boraði í nefnið og borðaði horið í beinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Heldur óheppilegt fyrir Smith.
Heldur óheppilegt fyrir Smith.
Iain Duncan Smith, þingmaður og fyrrverandi leiðtogi breska Íhaldsflokksins, vakti mikla athygli á breska þinginu í vikunni.

Það verður ekki sagt að athyglin sem Smith er að fá sé honum að skapi þar sem hann var gómaður við það að bora í nefið í beinni útsendingu.

Ekki nóg með það, þá borðaði Smith einnig eigið hor og sást þetta allt mjög vel.

Mikið hefur gengið á í breskum stjórnmálum síðustu sólarhringa, en þingið hafnaði í gær frumvarpi forsætisráðherrans um að boða til kosninga um miðjan október. Áður hafði þingið samþykkt frumvarp sem ætlað er að koma í veg fyrir útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu án samnings.

Hér að neðan má sjá atvikið sjálft.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.