Lífið

Kastaði upp á tónleikum

Harður Bieber lét sýkingu ekki á sig fá og hélt tónleika á Filippseyjum.
Harður Bieber lét sýkingu ekki á sig fá og hélt tónleika á Filippseyjum.
Það er ekki tekið út með sældinni að vera vinsælasta táningsstjarna heims. Og á því meðali fékk Justin Bieber að bragða á tónleikum sínum á Filippseyjum á þriðjudagskvöld.

Bieber ferðast nú um allan heim á tónleikaferðalaginu My World en babb kom í bátinn þegar hann fékk sýkingu í lungun.

Læknir ráðlagði Bieber að hætta við tónleikana eða taka mjög stutta útgáfu af þeim en söngvarinn neitaði að hlusta og sagðist ekki ætla að svíkja sitt fólk. Hann sást kasta upp á milli laga á tónleikunum en sýndi af sér fádæma hörku og kláraði sitt.

„Þetta voru góðir tónleikar en erfiðir. Er í alvörunni veikur. Verð að hvílast,“ skrifaði ungstirnið á twitter-síðu sína skömmu eftir tónleikana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.