Enski boltinn

Hundraðasta markið hjá Peter Crouch kom í kvöld | Sjáðu mörkin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Peter Crouch skoraði tímamótamark í 1-1 jafntefli Stoke og Everton í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Peter Crouch kom Stoke í 1-0 á 7. mínútu en það dugði ekki til sigurs því Everton jafnaði á 39. mínútu en markið er skráð sem sjálfsmark Ryan Shawcross.

Peter Crouch var nálægt því að koma Stoke í 2-0 í fyrri hálfleik en gott skot hans fór frétt framhjá.

Crouch var fastur í 96 mörkum í ensku úrvalsdeildinni í heillangan tíma en hefur nú skorað fjögur mörk í síðustu fimm leikjum sínum.

Crouch er nú kominn í hóp með 25 öðrum sem hafa skorað hundrað mörk í ensku úrvalsdeildinni.

Það þótti vel við hæfi að Crouch fagnaði með því að taka vélmenna-dansinn sinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×