Innlent

Varð bráðkvaddur undir stýri

Gissur Sigurðsson skrifar
Stór flutningabíll hafnaði utan vegar, á beinum vegarkafla, á móts við bæinn Hof í Öræfum, nærri Skaftafelli, á ellefta tímanum í gærkvöldi.

Þegar björgunarsveitarmen komu á vettvang sat ökumaðurinn undir stýri, en var látinn. Læknir kom skömmu síðar á vettvang en lífgunartilraunir báru ekki árangur.

Talið er að maðurinn, sem var roskinn, hafi orðið bráðkvaddur undir stýri. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×