Innlent

Neytendur fá app til að finna besta verðið

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Neytandinn er nýtt app sem hjálpar neytendum að gera verðsamanburð milli verslana, finna lægsta verðið og halda utan um innkaup sín. Þórdís Kolbrún Gylfadóttir, ráðherra neytendamála, tók Neytandann í notkun í dag á afmælishátíð Neytendasamtakanna en samtökin hönnuðu appið í samstarfi við Strimilinn.

Appið er einfalt í notkun. Neytandinn tekur mynd af kassastrimlinum, sem er véllesinn og sendur í gagnagrunn. Annars vegar persónulegan gagnagrunn og hins vegar stóran gagnagrunn sem allir neytendur með appið hafa aðgang að.

Eftir það er hægt að skoða strimilinn út frá þessum grunni. Til dæmis er hægt að skoða hvaða vörur hafa lækkað eða hækkað í verði í versluninni, gera verðsamanburð milli verslana á einstaka vöru og sjá hvar varan er ódýrust og dýrust. Einnig má sjá verðþróun vörunnar í einstaka verslunum.

„Þarna erum við að tala um verðsamanburð milli verslana, verðkönnun í raun og veru, í rauntíma. Við erum að gera virkja neytendur, efla verðvitund og samkeppni. Þetta er mikið og öflugt tæki til að auka og efla samkeppni á dagvörumarkaði," segir Ólafur Arnarson, formaður Neytendasamtakanna.

Í appinu er einnig persónuleg innkaupasaga neytandans og hægt er að senda myndir með annað hvort neikvæðum eða jákvæðum athugasemdum beint úr versluninni til Neytendasamtakanna sem vinna úr upplýsingunum. Til dæmis ef það vantar verðmerkingar eða neytendur vilja hrósa fyrir gott starf.

Ólafur segir að gagnagrunnurinn verði sífellt betri eftir því sem hann verður stærri og fleiri taka þátt. 

„Vonandi endar þetta á því að við getum gert virkan verðsamanburð í rauntíma á milli landa. Þetta app er algjörlega á forsendum neytandans, með hagsmuni og þarfir neytandans í huga. Við höfum ekki rekið okkur á að slíkt sé til staðar annars staðar, með þessum hætti. Kannski förum við bara í útrás með þetta, hver veit?“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×