„Viljum hjálpa þeim að hjálpa sjálfum sér“ Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 26. janúar 2017 20:30
Hópur nemenda í tíunda bekk í Kársnesskóla afhenti Geðhjálp í dag peninga sem þeir hafa safnað undanfarna mánuði til að styrkja forvarnir gegn sjálfskaðandi hegðun. Krakkarnir segja sjálfsskaða vera algengan á meðal ungmenna og vilja leggja sitt af mörkum til að vekja athygli á málefninu. Krakkarnir sinntu fjölbreyttri sjálfboðavinnu á vegum Rauða krossins í valáfanga í skólanum. Nokkrir hjálpuðu til á heimilum fyrir eldri borgara eða fólk með geðsjúkdóma, og aðrir tóku til hendinni í verslun Rauða krossins í Mjódd. Auk þess fóru þau öll á námskeið í skyndihjálp. Lokahnykkurinn í námskeiðinu var svo fjáröflun til styrktar málefni sem krakkarnir völdu sjálf. Tæplega hundrað þúsund krónur söfnuðust og í dag afhenti hópurinn Geðhjálp styrkinn vegna verkefnisins Útmeða, sem leggur í ár áherslu á sjálfskaða unga kvenna. Ása Hind Ómarsdóttir, ein nemendanna í tíunda bekk Kársnesskóla, segir flesta krakka á hennar aldri þekkja málefnið. „Þetta er málefni sem okkur nær. Þetta eru stelpur sem eru vinkonur okkar, við þekkjum flest einhverja sem eru að ganga í gegnum þetta. Við viljum hjálpa þeim að hjálpa sjálfum sér. Þetta er rosa stórt vandamál sem verður að gera eitthvað í,“ segir hún.
Mest lesið Mikið um dýrðir í Íslandsboðinu í konungshöllinni Innlent Margir í vandræðum í Kömbunum Innlent Segir Rússa reyna að skapa usla á götum Evrópu Erlent Milton safnar aftur krafti Erlent Afhöfðaður sex dögum eftir embættistöku Erlent Ýmsar áhyggjur varðandi flóttamenn í JL-húsinu Innlent Segja hermenn Kim líklega á leið til liðs við Rússa Erlent Sprautan umdeilda sem fólk er tilbúið að borga fyrir út ævina Innlent Greiða atkvæði um verkfall í níu skólum fram á fimmtudag Innlent Ákærður fyrir að nauðga barnungri frænku sinni Innlent Fleiri fréttir Mikið um dýrðir í Íslandsboðinu í konungshöllinni Margir í vandræðum í Kömbunum Greiða atkvæði um verkfall í níu skólum fram á fimmtudag Ýmsar áhyggjur varðandi flóttamenn í JL-húsinu Ekkert á hreinu um næstu kosningar Snjóþekja á Hellisheiði Leynd yfir aðgerðum kennara og í beinni frá höllinni Ákærður fyrir að nauðga barnungri frænku sinni Milljónagreiðslur haldi stjórnarflokkunum saman Skorti langtímarannsóknir á áhrifum Ozempic og Wegovy Bílastæðin malbikuð og nýr útsýnispallur fyrir fatlað fólk Reyna að ná til nýbúa til að Ísland verði fyrsta reyklausa þjóðin Varaþingmaður Miðflokksins vill skoða að stofna íslenskt varnarlið Kennarar greiða atkvæði um verkfall Svandís og Sigurður Ingi verja flugvallarákvörðun Rukka fyrir stæðin í þjóðgarðinum Yazan og fjölskylda komin með vernd „Þetta er bara órætt okkar á milli“ Alvarleg staða á leikskólunum sem þurfi að taka á tafarlaust Ekkert nema styrkleikamerki að birta öryggisveikleika Hugmyndir VG um vorkosningar óræddar og Kópavogsmódelið í borginni Verður kominn í rafrænt eftirlit þremur árum eftir manndrápið Skjáskotin hafi ekki farið í dreifingu Innan við helmingur nú hlynntur flugvelli í Vatnsmýri „Eins og við höfum verið að hitta gamla vini” Flugfreyjurnar segjast eiga sinn þátt í flugævintýrinu Söguleg heimsókn konungshjónanna í Jónshús Skrifstofustjóri með tuttugu ára reynslu nýr ráðuneytisstjóri Þorbjörg ætlar sér fyrsta sætið Drottningin baðst afsökunar á því að geta ekki boðið betra veður Sjá meira