Viðskipti innlent

Skyrið heitir nú ÍSEY skyr

Haraldur Guðmundsson skrifar
Mjólkursamsalan (MS) hefur látið hanna nýtt vörumerki fyrir skyr og gefið því nafnið ÍSEY skyr. Vörumerkið var unnið í samstarfi við innlenda og erlenda ráðgjafa í vörumerkjahönnun.

Samkvæmt tilkynningu MS vísar nafnið í Ísland og er auk þess íslenskt kvenmannsnafn en íslenskar konur sáu öldum saman um að búa til skyr. Að mati MS þykir nafnið einnig hentugt vegna þess að það er stutt og einfalt og auðvelt að bera fram á mismunandi tungumálum.

„ÍSEY skyr verður skráð vörumerki MS fyrir skyri þegar unnið er í samkeppni á erlendum mörkuðum við aðila sem framleiða og selja vöru sem kölluð er skyr. Til að hafa samræmi og heildstæða stefnu í markaðs- og vörumerkjavinnu með íslenska skyrið verður  vörumerkið ÍSEY skyr einnig tekið upp á Íslandi. Skyrsala MS á Íslandi og á erlendum mörkuðum hefur aldrei verið meiri en á árinu 2016. MS og samstarfsaðilar þess á Norðurlöndum seldu um 16.000 tonn af skyri á síðasta ári. Á Íslandi seldist um 3.000 tonn og erlendis voru seld um 13.000 tonn. Söluaukning á skyr.is innanlands var um 25% á síðasta ári sem er söluaukning sem á sér ekki fordæmi. Skýringin á þessari miklu söluaukningu innanlands er rakin til aukins ferðmannastraums til landsins,“ segir í tilkynningu MS. 

Stefnt er að því að vörumerkið verði kynnt í Sviss og Englandi á þessu ári. Jafnframt verði hafin sala á ÍSEY skyri í Benelux-löndunum á vormánuðum þar sem nýja vörumerkið verður jafnframt kynnt. Þá eru samningaviðræður hafnar við áhugasama aðila í Rússlandi, Nýja Sjálandi og Ástralíu um markaðssetningu og sölu á ÍSEY skyri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×