Innlent

Einn fluttur á sjúkrahús eftir umferðarslys í Skagafirði

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Þjóðvegur 1 er lokaður við bæinn Sunnuhvol í Blönduhlíð í Skagafirði vegna umferðarslyss. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Blönduósi er þó hægt að komast leiða sinna um hjáleið. 

Um tveggja bíla árekstur var að ræða. Tveir farþegar voru í hvorum bílnum og hefur einn verið fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar. Ekki er vitað um ástand hans að svo stöddu. 

Vænta má að lokunin vari fram undir klukkan 18.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×